Veljið tengil á viðkomandi rás efst til hægri á síðunni. Ýtið svo á örvatakkann (‚play‘) í spilaranum ofarlega til hægri á síðu rásarinnar.
Veldu tengil merktann RÚV efst til hægri á síðunni. Smelltu á stóra spilarann á miðri RÚV-síðunni til að horfa. Athugið að ekki er öll sjónvarpsdagskrá RÚV send út á vefnum.
Þær eru vistaðar í Sarpinum, vefupptökusafni RÚV. Tengil á Sarpinn er að finna í aðalvalmynd efst á vefnum.
Á síðunni ruv.is/dagskra. Þar er að finna yfirlit yfir dagskrá dagsins á RÚV, Rás 1 og Rás 2. Einnig má nota dagatal á síðunni til að skoða dagskrá fram- og aftur í tíman.
Sarpurinn er vefupptökusafn RÚV. Þar er safnað saman upptökum af Rás 1, Rás 2 og RÚV til spilunar á vefnum. Einnig eru þar upptökur sem aðeins er að finna á vefnum. Í Sarpinum má leita að upptökum eftir miðli, flokkum og einstökum þáttum en einnig eftir leitarorði. Upptakan sem notandinn velur spilast í spilara efst á miðri síðunni hvort sem um er að ræða hljóð- eða myndupptöku.
RÚV geymir upptökur úr útvarpi og sjónvarpi í a.m.k. tvær vikur frá útsendingardegi.
RÚV hefur ekki réttindi til að sýna stóran hluta af útsendri sjónvarpsdagskrá á vefnum. Þetta gildir m.a. um mikið af erlendu dagskrárefni. Þá geta gilt sérsamningar um sýningar sjónvarpsefnis á vefnum. Um sumt sjónvarpsefni, s.s. alþjóðlegt íþróttaefni, gildir að ekki má hafa það aðgengilegt á vef í útlöndum. Flest útvarpsefni er aðgengilegt til spilunar á vefnum.
RÚV notar Flash streymi til að streyma hljóð- og myndefni á vefnum. Tölvur notenda þurfa því Flash-viðbót frá Adobe til að spila efnið í Sarpinum. Tæki sem ekki styðja flash, s.s. iPhone og iPad, geta spilað efnið með hjálp HTML5 staðalsins sem er sjálfgefin t.d. í Safari vafranum.
Farsímavefurinn m.ruv.is er sérsniðinn að þörfum snjallsíma og spjaldtölva (t.d. iPhone og síma með Androd stýrikerfinu frá Google) Farsímanotendur sem kjósa hreinan textavef geta notast við textaútgáfu á slóðinni www.ruv.is/text. Þá er aðalvefur RÚV einnig aðgengilegur fyrir þá sem það kjósa.
Farsímaútgáfan m.ruv.is er m.a. ætluð fyrir iPad en aðalvefur RÚV hentar einnig fyrir iPad. Upptökur í Sarpinum á www.ruv.is eru aðgengilegar á iPad.
Upplýsingar og svefslóðir fyrir netútvörp má nálgast á slóðinni www.ruv.is/netutvorp.