Allt um UNM!
Fyrst birt: 28.08.2012 16:45, Síðast uppfært: 29.08.2012 09:04

Tónlistarhátíðin UNM hefst í kvöld og stendur yfir til 1. september næstkomandi. Á hátíðinni í ár verða 35 tónverk, eftir jafnmörg norræn tónskáld, sem öll eru yngri en þrítug.
UNM hefur verið haldin allt frá árinu 1943. Fimm Norðurlandaþjóðir skiptast á að halda hátíðina og í ár er komið að Íslandi.
Í Víðsjá 28. ágúst var rætt við tónskáldin Guðmund Stein Gunnarsson og Þórunni Grétu Sigurðardóttur, tvo af skipuleggjendum hátíðarinnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













