Klassísk tónlist eins og þú hefur aldrei áður upplifað hana!
Tíu fingur í umsjón Jónasar Sen eru nýir þættir sem sýndir eru í Sjónvarpinu eftir Kastljós á sunnudögum. Þættirnir eru síðan endursýndir viku síðar á sunnudagseftirmiðdögum. Ritgerð um þættina má lesa hér.

Sjónvarsþáttaröðin Tíu fingur er í umsjón Jónasar Sen og er stærsta verkefni á sviði klassískrar tónlistar sem Sjónvarpið hefur ráðist í frá upphafi. Þættirnir eru tólf og fjalla um íslenska hljóðfæraleikara úr klassíska geiranum sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmti tíma. Hver þáttur er um klukkustund að lengd.
Jónas tekur viðtöl við tónlistarfólkið sem brotin eru upp með nýjum tónlistarupptökum. Viðtölin fóru fram á heimili hljóðfæraleikaranna en tónlistarupptökurnar voru gerðar í myndveri RÚV. Heildartími hvors um sig er 25 – 30 mínútur. Um dagskrárgerð sér Jón Egill Bergþórsson.
Hvað er undir yfirborðinu?
Leitast er við að sýna hljóðfæraleikarana á annan hátt en vanalega, þ.e. varpa ljósi á manneskjuna á bak við þá persónu sem birtist áheyrendum á tónleikapallinum. Jafnframt er tónlistin sett í samhengi við mannlegar hliðar viðmælendanna og reynt að komast að því hvaða merkingu tiltekin tónverk, og líka tónlistin í heild, hafi fyrir hljóðfæraleikurunum. Tilgangurinn er að skyggnast undir yfirborð sígildrar tónlistar, skýra hana og gera meira aðlaðandi.
Hvert viðtal er kryddað með brotum úr eldri upptökum af leik viðkomandi og auk þess koma nokkrir þekktir einstaklingar úr tónlistarlífinu er „kommentera“ á þann sem Jónas talar við.
Horfðu á lengri útgáfu viðtalanna hér!
Hér á síðunni má sjá þættina í heild sinni eftir að þeir hafa verið sýndir í Sjónvarpinu. Einnig er hægt að hlusta á hvert tónverk sérstaklega. Auk þess er bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á lengri útgáfu hvers viðtals. Í lengri útgáfunum koma fram margar upplýsingar sem af ýmsum ástæðum var ekki hægt að hafa með í sjónvarpsþáttunum.
Hvað eru Tíu fingur?
Á síðunni er jafnframt að finna dýpri umfjöllun um þættina en hægt væri að gera skil í venjulegum sjónvarpsþætti. Að boðið sé upp á slíka greiningu markar þáttaskil í sögu Sjónvarpsins. Þetta er ritgerð sem Jónas skrifaði um þættina, en hún skiptist í þrjá meginhluta. Í þeim fyrsta er fjallað um það menningarumhverfi sem þættirnir eru sprottnir úr, í öðrum hluta er fjallað um viðtölin og hvað þau segja um íslenskt tónlistarlíf en í þriðja hluta er tónlistin í þáttunum krufin til mergjar í víðu menningarlegu samhengi.
Lestu ritgerðina hér!
