» Suðurland

Suðurland | 11.03.2010 10:17

200 grömm af amfetamíni í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á 200 grömm af amfetamíni í gær. Efnið fannst við leit í bíl sem kom með Herjólfi til Eyja síðdegis. Maður á fertugsaldri viðurkenndi að eiga...

Suðurland | 10.03.2010 12:27

Sjálfstæðismenn ekki fram í Vík

Sjálfstæðismenn munu ekki bjóða fram lista í Mýrdalshreppi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Sveitarstjórnarfulltrúi flokksins segir ástæðurnar vera ágreining meðal flokksmanna um veglínu í bænum, og stöðu Sjálfstæðisflokksins á landsvísu í kjölfar hrunsins.

Suðurland | 09.03.2010 15:47

Um fjórar ferðir á dag til Eyja

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur lagt drög að ferðaáætlun Herjólfs vegna siglinga í Landeyjahöfn í sumar, samkvæmt beiðni Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyrir fjórum til fimm ferðum milli lands og Eyja á dag yfir sumarmánuðina en þremur til fjórum á öðrum árstímum.

Suðurland | 08.03.2010 11:32

Áhyggjur af vatnslögn til Eyja

Almannavarnarnefnd í Vestmannaeyjum hefur sent erindi til HS veitna þar sem lýst er yfir áhyggjum af vatnsforða Vestmannaeyinga í kjölfar jarðhræringa í Eyjafjallajökli.

Suðurland | 08.03.2010 10:12

Mýrdalshreppur samþykkir sjóvörn

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt tillögu að nýju aðalskipulagi þar sem gert er ráð fyrir nýjum sjóvarnargarði í Víkurfjöru. Samkvæmt henni á að reisa garðinn fjær byggð en tillögur Siglingastofnunar kveða á um.

Suðurland | 05.03.2010 21:31

Íbúar undir Eyjafjallajökli rólegir

Íbúar í Rangárþingi eystra, sem búa næst Eyjafjallajökli, eru hinir rólegustu yfir jarðskjálftunum og spáir sveitarstjórinn á svæðinu ekki eldgosi. Bóndi í Fljótshlíðinni segir samspil vera á milli góðrar veðráttu í vetur og skjálftanna í jöklinum.

Suðurland | 05.03.2010 18:00

Almannavarnir virkja háskastig

Meiri skjálftavirkni er nú í Eyjafjallajökli en í síðustu skjálftahrinu fyrir tíu árum. Almannavarnir hafa virkjað viðbragðsáætlun á fyrsta háskastig vegna mögulegs eldgoss í jöklinum.

Suðurland | 05.03.2010 15:55

Fleiri skjálftar mælast

Enn skelfur jörð undir Eyjafjallajökli og síðustu klukkutíma hafa orðið 20-30 skjálftar á klukkustund. Það er heldur rólegra en verið hefur síðustu sólarhringa en engu að síður eru almannavarnir í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegs eldgoss.

Dóms- og lögreglumál | Suðurland | 05.03.2010 15:30

Dæmdir fyrir innbrot í sumarbústaði

Tveir karlmenn voru dæmdir í eins og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í morgun fyrir innbrot, þjófnað og hylmingu þýfis.

Suðurland | 05.03.2010 13:42

Óttast um vatnslögn en ekki höfn

Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum og formaður Almannavarnanefndar þar, segir að helsta áhyggjuefni Eyjamanna vegna hugsanlegs eldgoss í Eyjafjallajökli sé vatnsleiðslan til Vestmannaeyja. Meðal annars sé horft til þess að vatnið geti mengast eða leiðslan eyðilagst.

Suðurland | 05.03.2010 13:09

Viðbragðsáætlun virkjuð

Almannavarnir hafa virkjað viðbragðsáætlun vegna aukinnar jarðskjálftavirkni í Eyjafjallajökli. Ákveðið var á fundi Vísindamannaráðs almannavarna í morgun að setja áætlunina á fyrsta háskastig - óvissustig. Í því felst að aukið er við athuganir, rannsóknir, vöktun og mat og samráð aukið milli almannavarna og þeirra stofnana sem málið varðar, segir í tilkynningu frá Almannavörnum.

Dóms- og lögreglumál | Suðurland | 05.03.2010 12:51

Maðurinn fannst látinn í morgun

Maðurinn sem hvarf frá dvalar-og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði um kvöldmatarleytið í gær og lögreglan á Selfossi lýsti eftir í morgun fannst á ellefta tímanum í morgun. Hann var látinn. Björgunarsveitarmenn fundu manninn á víðavangi í Ölfusi rétt sunnan Hvergerðis. Talið er að hann hafi orðið úti. Hann var 53 ára gamall.

Suðurland | 05.03.2010 12:21

Ekki miklar líkur taldar á eldgosi

Klukkan rúmlega sex í morgun mældist jarðskjálfti upp á rúma þrjá á Richter undir Eyjafjallajökli. Þetta er stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni þar, sem hófst fyrir tveimur sólarhringum. Fundi Almannavarna og vísindamannaráðs í Samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð er nýlokið.

Suðurland | 05.03.2010 10:49

Hægt að bóka hópa með Herjólfi

Vegagerðin vinnur enn að því að ljúka gerð samnings við Eimskip um áframhaldandi rekstur Herjólfs vegna siglinga í Landeyjahöfn sem eiga að hefjast 1. júlí. Hvorki gjaldskrá né ferðaáætlun liggja því fyrir. Í afgreiðslu Herjólfs í Vestmannaeyjum er þó farið að taka við bókunum fyrir hópa í sumar.

Dóms- og lögreglumál | Suðurland | 05.03.2010 07:24

Lýst eftir Jónasi S. Þorleifssyni

Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Jónasi S. Þorleifssyni sem fór frá Dvalar-og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði um kl. 18:00 þann 4. mars. Jónas er 53 ára, um 180 cm á hæð, grannvaxinn með dökkt þunnt hár sem farið er að grána. Ekki er vitað nánar um klæðaburð Jónasar nema að hann gæti verið í ljósri yfirhöfn.

Suðurland | 05.03.2010 07:20

Skjálftahrina undir Eyjafjallajökli

Jarðskjálfti upp á rúma þrjá á Richter mældist undir Eyjafjallajökli klukkan 6.13 í morgun. Þetta er stærsti skjálftinn sem mælst hefur á þessum slóðum síðan jarðskjálftahrinan hófst þar fyrir tæpum tveimur sólarhringum.

Suðurland | 04.03.2010 16:05

Nemendur aðstoða á loðnuvöktum

Loðnu var landað úr átta skipum í Vestmannaeyjum í gær. Samtals var aflinn rúmlega átta þúsund tonn. Meðal þeirra sem taka þátt í loðnuvinnslunni eru framhaldsskólanemendur í Eyjum.

Dóms- og lögreglumál | Suðurland | 03.03.2010 07:13

Eldur kom upp í spónaverksmiðju

Miklar reykskemmdir urðu og talsvert brunatjón varð þegar eldur kom upp í um þúsund fermetra spónaverksmiðju við Sunnumörk í Hveragerði um hálf eitt leytið í nótt.

Suðurland | 02.03.2010 11:32

Ásókn í störf á nýjum frystitogara

Útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir mikla ásókn í störf um borð í nýjum frystitogara sem fyrirtækið hefur keypt af þrotabúi dótturfélags Nýsis. Ráða þarf í rúmlega tuttugu stöður um borð og segir Guðni Ingvar Guðnason útgerðarstjóri að nú þegar hafi tvöfalt fleiri fyrirspurnir borist eftir að auglýst var eftir skipstjóra.

Atvinnulíf | Suðurland | 02.03.2010 11:03

Uppsögnum frestað um mánuð

Uppsögnum fjögurra sjúkraflutningamanna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi, sem áttu að taka gildi nú um mánaðamótin, hefur verið frestað um einn mánuð, eða til fyrsta apríl. Fjórir sjúkraflutningamenn verða því enn um sinn á vakt á tveimur sjúkrabílum í Árnessýslu.

Suðurland | 01.03.2010 15:38

Tilboð í smíði brúar og landgangs

Fyrirtækið Stál og suða bauð lægst í smíði ekjubrúar og landgangs í Landeyjahöfn, rétt tæpar 30 milljónir króna. Það er rúmum 20 milljónum lægra en kostnaðaráætlun verksins hljóðaði uppá.

11. mars 2010

Streymiþjónusta