
Pólitískur gamanleikur eftir Hermann Stefánsson.
Leikendur: Guðjón Davíð Karlsson, Erla Ruth Harðardóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Margrét Kaaber.
Tónlist: Einar Sigurðsson.
Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson.
Hljóðvinnsla: Ragnar Gunnarsson.
(Frá 2009)
Ungur starfsmaður í Þjóðmenningarhúsinu leitar til geðlæknis vegna fíknar sinnar í ofbeldisfullan tölvuleik. Heimsóknir hans til læknisins fara á annan veg en hann ætlaði og áhöld eru um hvar ofbeldið leynist, hvað er leikur og hvað er alvara, hvað ímyndun og hvað veruleiki. Fyrr en varir streymir blóðið um gólf og veggi Þjóðmenningarhússins og líkin hrannast upp í íslensku samfélagi. ª
Tilkynna um bilaða upptöku