
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
(Aftur á þriðjudag)
Detroit-gítarleikarinn Kenny Burrell stendur á áttræðu en er enn í fullu músíkfjöri, spilar og kennir ungmennum við UCLA háskóla í Kaliforníu. Hann sló í gegn árið 1963 með blúsuðu hardbop-plötunni Midnight Blue og rifjaði nýlega upp gerð hennar í viðtali við veftímaritið allaboutjazz.com. Í þættinum verður gripið niður í viðtalið og leikin lög af Midnight blue, sem og ýmsum öðrum plötum sem Kenny Burrell hefur komið nálægt á löngum ferli. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Tilkynna um bilaða upptöku