Strætó - allir hafa skoðun
Fyrst birt: 29.08.2012 12:52, Síðast uppfært: 29.08.2012 12:53
Flokkar: Mannlíf, Samfélagið í nærmynd

Reynir Jónsson framkvæmdastjóri Strætó Bs. kom í viðtal í samfélagið í nærmynd í dag og ræddi nýjar áætlunarferðir til Akureyrar og seinna Egilsstaða og hvaða aðrar leiðir væru í sigtinu, og hann ræddi einnig hækkun fargjalda ss. eins og nemakorta en mikil óánægja hefur verið með þessa hækkun.
Ástæðuna fyrir hækkuninni segir Reynir vera margþætta, en aðal ástæðan er sú að sveitafélögin greiða ekki eins mikið niður og áður og einnig sú að ákveðið var að bjóða grunnskólanemum sama gjald. Kortin gilda út ágúst á næsta ári sem þýðir að nemendur geta byrjað skólaárið með gamla kortið og endurnýjað svo í lok ágúst.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














