Sjáöldrin geta sagt til um sjúkdóma
Fyrst birt: 28.08.2012 13:36, Síðast uppfært: 29.08.2012 07:54
Flokkar: Mannlíf, Samfélagið í nærmynd

Sagt er að augun séu spegill sálarinnar. Til viðbótar þá geta þau endurspeglað líkamann og ýmislegt sem þar fer fram. Augnlæknar eru svo heppnir að geta kíkt inn um gluggann á auganu (í auganu er tvöfalt gler, hornhimna og augasteinn) og sjá bæði æðar og sjóntaugina.
Ýmislegt annað er hægt að sjá í augunum. Stundum geta dökkir blettir í augnbotni bent til vissrar tegundir ristilkrabbameins og nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að sjáöldrin geta gefið vísbendingar um byrjandi Alzheimer, jafnvel áður en einkenni sjúkdómsins koma fram. Jóhannes Kári Kristjánsson augnlæknir kom í viðtal í Samfélagið í nærmynd en hann ritaði um þetta grein í Fréttablaðið þann 12. ágúst sl.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














