Baltasar Kormákur í viðtali

Við stöldruðum við í listheimum í þætti kvöldsins. Baltasar Kormákur var gestur okkar en kvikmynd hans Djúpið hefur fengið lofsamlega dóma.
Myndin fjallar um Guðlaug Friðþórsson sem synti í land eftir að vélbáturinn Hellisey sökk við Vestmannaeyjar árið 1984 en Guðlaugur er ósáttur við gerð myndarinnar. Vinir hans úr áhöfninni fórust þessa nót en sjálfur var Guðlaugur um sex tíma í ísköldum sjónum og gekk síðan berfættur í gegnum úfið hraun í aðra tvo tíma. Baltasar Kormákur settist hjá Sigmari en áður en þeir ræddu saman sáum við tvö myndbrot, annað úr viðtali við hin eina sanna Guðlaug Friðþórsson sem tekið var skömmu eftir hinn hörmulega sjóskaða og hinsvegar brot úr nýju kvikmyndinni, Djúpið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













