ruv.is / jol / Jóladagskrá Rásar 1

Jóladagskrá Rásar 1

Þorláksmessa

6.39 Morgunþáttur Rásar 1

Sigurlaug Margrét tekur á móti góðum gestum; KK og Ellen syngja jólalög fyrir hlustendur, Magnús R Einarsson spilar og syngur ítalskt jólalag á Mandólín og fleiri góðir morgungestir koma í heimsókn.

08.05 Jólakveðjur

Jólakveðjurnar góðu verða fluttar á Þorláksmessu í bland við ljúfa tónlist.

Aðfangadagur

11.00 Englaraddir óma

Íslenskir barnakórar syngja ljúf jólalög rétt fyrir hádegi á aðfangadag.

13.00 Gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár

Karl Eskil Pálsson fjallar um sögu jólakortanna en fyrsta jólakortið varð til fyrir algera slysni í desember árið 1843. Lundúnabúinn Henry Cole áttaði sig á því að hann hafði gleymt að skrifa bréf með jólakveðjum til vina og ættingja. Hann bað því vin sinn að hanna kort með staðlaðri kveðju. Kveðjan var einföld: Gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár.

14.00 Og hermennirnir sungu Heims um ból

Jólahald á stríðsárunum í tali og tónum. Una Margrét Jónsdóttir fjallar um jól á árum heimstyrjaldarinnar síðari, en á þeim tíma urðu til mörg fræg jólalög eins og t.d. „White Christmas“ og „Have yourself a Merry Little Christmas“. Meðal annars verður rætt við Guðrúnu Helgadóttur rithöfund sem rifjar upp jólasöng hermannanna hér á landi, og einnig við Kristínu Jónsdóttur myndlistarkonu sem rifjar upp hvernig jólakveðjur bárust frá hinum hernumdu Norðurlöndum.

15.25 Jólin koma

Gömlu góðu jólalögin með Ellý og Vilhjálmi, Hauki Morthens og fleirum.

16.08 Engill í snjónum

Jólin eru í hugum flestra samverustund ástvina. Þó eru margir í þeim aðstæðum að geta ekki verið í faðmi fjölskyldunnar á þessari hátíð ástvina og kærleika, vegna ýmissa aðstæðna. Í þættinum Engill í snjónum er rætt við fólk sem færir öðrum jólin, þeim sem minna mega sín af ýmsum ástæðum. Við heyrum af jólum á sjúkrahúsi hjá Þórunni Sævarsdóttur hjúkrunarfræðingi á krabbameins- og blóðlækningadeild Landspítalans. Margrét Frímannsdóttir forstöðumaður fangelsins á Litla Hrauni segir frá jólum fanga sem þar dveljast fjarri ástvinum sínum. Rebekka Þórsdóttir menntaskólanemi hjálpar til á Hjálpræðishernum ásamt fjölskyldu sinni á aðfangadagskvöld, þar sem einstæðingar eiga skjól. Páll Ágúst Ólafsson guðfræðinemi er einn þeirra sem stendur fyrir söfnun jólagjafa handa börnum í Úkraníu sem kallast Jól í skókassa. Hann segir frá ferð sinni til munaðarlausu bananna þangað með jólaglaðninginn frá íslenskum börnum. Umsjón með þættinum hefur Viðar Eggertsson.

17.10 Húmar að jólum

Sellósónötur eftir Joseph Bodin de Boismortier og Jean-Baptiste Barrière. Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir og Mathurin Matharel leika á selló og Guðrún Óskarsdóttir leikur á sembal. Frumflutningur á nýju hljóðriti Ríkisútvarpsins.

Kirkjuklukkur Dómkirkjunnar í Reykjavík hringja svo inn jólin klukkan 18.

19.00 Jólatónleikar Útvarpsins

• Konsert í G-dúr fyrir flautu, strengi og fylgirödd, QV 5:174 eftir Johann Joachim Quantz • Áshildur Haraldsdóttir leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands; Gerrit Schuil stjórnar. • Sellókonsert í G-dúr RV 414 eftir Antonio Vivaldi. • Sigurður Halldórsson leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands; Bernharður Wilkinson stjórnar • Óbókonsert í C-dúr op. 7, nr. 3 eftir Jean-Marie Leclair. • Daði Kolbeinsson leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands; Bernharður Wilkinson stjórnar. • Konsert í D-dúr fyrir horn, strengi og fylgirödd eftir Georg Philipp Telemann. • Joseph Ognibene leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands; Páll P. Pálsson stjórnar.

20.00 Jólavaka Útvarpsins

20.00 Jól í ljóðum og frásögnum. Umsjón: Gunnar Stefánsson
21.00 Tónlist á jólavöku
Helgitónlist úr ýmsum áttum í flutning innlendra og erlendra tónlistarmanna

22.22 Jólaóratórían

eftir Johann Sebastian Bach. Anthony Rolfe Johnson, Nancy Argenta, Anne Sofie von Otter, Hans Peter Blochwitz og Olaf Bär syngja með Monteverdi kórnum og Ensku barrokkeinleikurunum. John Eliot Gardiner stjórnar.

Jóladagur

8.15 Maríusonur mér er kalt

Bókmenntadagskrá um fæðingarhátíð Frelsarans. Umsjón hefur Dagný Kristjánsdóttir. Flytjendur með henni eru Ingibjörg Haraldsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir.

9.20 Tónlist að morgni jóladags eftir Antonio Vivaldi

10.13 „Undrunin, hún lýsir upp myrkrið...“

Jórunn Sigurðardóttir fjallar um Ísak Harðarson skáld.

13.00 Töfraflautan

Töfraflautan eftir Mozart. Frá sýningu Íslensku óperunnar í nóvember síðastliðnum.

16.05 Víðáttan endalausa

Guðni Tómasson kíkir í heimsókn í vinnustofu Errós í París. Fyrri þáttur af tveimur.

17.00 Jólasería

Listamenn úr ýmsum áttum flytja ný ljóð, tónlist, hugvekjur og gjörninga sem tengjast jólunum. Umsjón hafa Haukur Ingvarsson og Elísabet Indra Ragnarsdóttir.

18.15 Með vísnasöng ég vögguna þína hræri

Einar Sigurðsson í Eydölum, ævi hans og skáldskapur. Umsjón hefur Kristján Eiríksson. Lesari er Svanhildur Óskarsdóttir.

19.00 Óratorían Messías

Óratorían Messías eftir Händel í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu, 2. desember sl.

22.10 Í Davíðshúsi við Bjarkarstíg

Þátturinn er helgaður Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi og einkum er reynt að bregða upp mynd af því hvaða mann skáldið hafði að geyma. Sjónarhornið er hús skáldsins við Bjarkarstíg 6 á Akureyri, hús sem Davíð lét reisa og hann flutti í árið 1944.

Annar dagur jóla

13. 00 Jólasögur úr samtímanum

Þorgerður E. Sigurðardóttir fjallar um sögur Guðbergs Bergssonar úr bókinni „Jólasögur úr samtímanum“.

14.00 Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur

Ítölsk barokktónlist í hljóðritun frá jólatónleikum Kammersveitarinnar í Norðurljósasal Hörpu 18. desember sl. Einleikarar: Ines d’Avena blokkflautuleikari og Una Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikarar.

19.00 Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Trúðurinn Barbara, Skólakór Kársness og Kristjana Stefánsdóttir koma öllum í jólaskap á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Einleikarar eru Sólveig Steinþórsdóttir og Sölvi Kolbeinsson. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson

23.15 Vígð náttin

Kammerkórinn Carmina flytur trúarlega tónlist úr íslenskum sönghandritum frá 15., 16. og 17. öld, bæði í upprunalegri mynd og í nýjum raddsetningum íslenskra tónskálda. Stjórnandi er Árni Heimir Ingólfsson.

27. desember

10.13 Jóla hvað?

Jólasveinar og aðrar jólavættir, bæði eldfornar og glænýjar. Umsjón hafa Kristín Eva Þórhallsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir.

14.03 „Óperan leiðir okkur inní draumaheim...“

Ólöf Sigursveinsdóttir ræðir við óperusöngvarana Þóru Einarsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson og Viðar Gunnarsson.

16.05 Fúmm fúmm fúmm

Í fyrsta þætti af þremur er fjallað um ólíka siði og hefðir við jólahald. Umsjón hafa Árni Kristjánsson og Magnús Örn Sigurðsson.

Gamlársdagur

11.00 Aftur og fram - vangaveltur við áramót

Ævar Kjartansson fær til sín góða gesti í hljóðstofu.

15.00 Hoppa álfar hjarni á

Una Margrét Jónsdóttir fjallar um álfadanshefðina íslensku sem hófst á 19. öld.

16.05 Hvað gerðist á árinu?

Fréttamenn útvarps greina frá atburðum á innlendum og erlendum vettvangi ársins 2011.

19.00 Þjóðlagakvöld

Tryggvi Tryggvason og félagar, Gréta Guðnadóttir, Ingunn Hildur Hauksdóttir, Gísli Magnússon, Kammerkórinn og Einsöngvarakórinn ásamt félögum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands syngja og leika þjóðlög og áramótasöngva.

21.15 Tunnan valt

Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarnason syngja með hljómsveit Svavars Gests, lög úr útvarpskabarettinum Tunnan valt frá árinu 1960. Jón Múli Árnason og Torolf Smith kynna.

23.00 Karíjóka

Svipmynd af áramótagleði Útvarpsins í beinni útsendingu úr Þjóðleikhúskjallaranum árið 1983. Fram koma hljómsveitin Stuðmenn, ásamt Jónasi Jónassyni og Flosa Ólafssyni. Þá líta í heimsókn Henríetta og Rósamunda, sem leiknar eru af Helgu Thorberg og Eddu Björgvinsdóttur. Umsjón hafa Ævar Kjartansson og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.

00.05 Gleðilegt ár!

Lana Kolbrún Eddudóttir fylgir hlustendum inn í nýtt ár.

Nýársdagur

14.00 Útvarpsleikhúsið: Fjalla-Eyvindur

Fjalla-Eyvindur er eftir Jóhann Sigurjónsson, fyrsta atvinnuskáld Íslands. Útvarpsleikhúsið flytur eitt merkasta leikverk Íslands í nýrri útvarpsleikgerð og leikstjórn Mörtu Nordal.

15.05 Þruma, elding og lífsástin sjálf

Elísabet Indra Ragnarsdóttir skyggnist í tónvísindasmiðju Biophiliu.

16.05 Gestir í Hörpu

Frá tónleikum Maria João Pires píanóleikara, fiðluleikarans og stjórnandans Maxims Vengerovs og St. Christophers kammersveitarinnar frá Vilnius í Hörpu 8. júlí sl.

19.00 Leðurblakan eftir Johann Strauss

Sígild hljóðritun frá 1960.
Í aðalhlutverkum:
Eisenstein: Waldemar Kmentt.
Rósalinda: Hilde Gueden.
Adela: Erika Köth.
Dr. Falke: Walter Berry.
Orlofsky fursti: Regina Resnik.
Heiðursgestir á Gala-kvöldi: Renata Tebaldi, Fernando Corena, Birgit Nilsson, Joan Sutherland, Jussi Björling, Leontyne Price og fleiri.
Kór Ríkisóperunnar í Vín og Fílharmóníusveit Vínarborgar; Herbert von Karajan stjórnar.

23.00 Nýárskonsert

Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur; Bernharður Wilkinson stjórnar.