Þetta er allt blús!
Fyrst birt: 08.09.2012 17:09, Síðast uppfært: 09.09.2012 20:42

Snillingurinn Jack White er í Rokklandi á sunnudaginn (09.09.12)
Jack White er af mörgum talinn snillingur sinnar kynslóðar. Óli Palli fer yfir ferilinn og Jack segir sjálfur frá æskunni í Detroit, ástinni, The Dead Weather, The Raconteurs, talar um blúsinn, White Stripes, Meg White, þröngsýna indie-hipstera og síðasta en ekki síst sólóplötuna sína frábæru!
Rokkland alla sunnudaga kl. 16.05 og endurtekið á þriðjudagskvöldum kl. 22.05.
Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson
olipalli@ruv.is
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














