Popppunktur snýr aftur!
22.06 Popppunktur snýr enn aftur á RÚV sumarið 2012. Að þessu sinni ber þáttaröðin yfirskriftina Barátta stéttanna.

22.06 Popppunktur snýr enn aftur á RÚV sumarið 2012. Að þessu sinni ber þáttaröðin yfirskriftina Barátta stéttanna.

Á föstudögum kl. 19.35
Popppunktur er spurningaþáttur um popptónlist sem hóf göngu sína á Skjá einum árið 2002 en fluttist yfir á RÚV árið 2009. Þættirnir eru í umsjón Gunnars Lárusar Hjálmarssonar (Dr. Gunna) og Felix Bergssonar en þeir hafa stjórnað þáttunum frá upphafi. Langflestar seríurnar hafa verið með útsláttarfyrirkomulagi og íslenskar hljómsveitir hafa tekið þátt í keppninni.
Þó hefur formið verið brotið upp með reglulegu millibili. Þættirnir eru nú komnir vel á annað hundrað. Dr. Gunni segir svona frá fyrsta þættinum og fyrstu seríunni á heimasíðu sinni
„Fyrsti þátturinn af Popppunktur var sýndur 14. sept. 2002. Stuðmenn skíttöpuðu fyrir Í svörtum fötum. Í fyrstu vísbendingaspurningunni var spurt um Bob Geldof. Ég man að mér fannst skrítið að Jakob Magnússon hélt að Sex Pistols væri Motorhead. Við vorum ekkert vissir um að við fengjum að gera PP aftur svo við vorum með allar helstu stórkanónur poppsins í þættinum. Þátturinn var eins byggður upp og núna nema við vorum ekki með Popphjól heldur buðum upp á Hopp & Popp, Pílupopp og Glímupopp. Í fyrstu seríunni var reynt að stæla Kontrapunkt með liðnum "Kontraspjallið", en það gafst illa og var fljótlega lagt af. Ham vann Rokksveit Rúnars Júl í æsispennandi úrslitaleik...“
Popppunktur fann sér nýtt heimili á RÚV árið 2009 og hefur verið á sumardagskrá sjónvarpsins síðan. Undanfarin sumur hafa íslenskar hljómsveitir keppt í þáttunum. Þar hafa margar eftirminnilegar rimmur átt sér stað en sú frægasta er án efa keppni Áhafnarinnar á Halastjörnunni og Sigurrósar. Sá þáttur vakti gríðarlega athygli innanlands sem utan.
Þáttaröð sumarsins 2012 ber yfirskriftina Barátta stéttanna.