podcast logoHLAÐVARP- PODCAST RÚV

DAGLEGAR UPPFÆRSLUR

hádegisfréttir

Flestir landsmenn hlusta á hádegisfréttir Útvarpsins. Hádegisfréttirnar er nú aðgengilegar í podkasti strax að lestri loknum.

hádegisfréttir

Kvöldfréttir Ríkisútvarpsins klukkan 18:00 eru nú aðgengilegar vefnotendum sem podcast.

morgunvaktin á Rás 2

Morgunvaktin er á léttum nótum en tekur einnig á erfiðum fréttamálum og öðru efni sem brennur á fólki. Stjórnendur eru Lára Ómarsdóttir og Freyr Eyjólfsson.

samfélagið í nærmynd

Í þættinum Samfélaginu í nærmynd eru þjóðmálin skoðuð frá ýmsum hliðum. M.a. er fjallað um heilbrigðismál, félagsmál og atvinnumál og ýmsum skemmtilegum fróðleiksmolum skotið inn á milli atriða.

Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið.

Spegillinn

Spegillinn er gagnrýninn fréttaskýringaþáttur sem er á dagskrá að loknum kvöldfréttum alla virka daga á báðum rásum Útvarpsins.

víðsjá

Þáttur um menningu og listir á dagskrá Rásar eitt, alla virka daga milli klukkan 17 og 18. Í Víðsjá er fjallað um menningu á breiðum grundvelli, innan lands og utan.

Vítt og breitt

Meðal efnis er umfjöllun um daglegt mál í samfélagi við Aðalstein Davíðsson málfarsráðunaut, söfnun orðskýringa í samvinnu við Orðabók Háskólans, vísindaspjall, umhverfismál og útivist.

efst á síðu!Upp

AÐRIR ÞÆTTIR


- A - efst á síðu!

raekta

Að rækta fólk eru 6 þættir, sem gerðir eru í tilefni af því að 100 ár eru frá því fræðslulög og lög um kennaramenntun voru sett. Umsjón með þáttunum hafa Anna Margrét Sigurðardóttir og Leifur Hauksson.

Andrarímur

Guðmundur Andri Thorsson spjallar við hlustendur í þættinum Andrarímur og leikur gamlan djass og blús, kammermúsík og vísnasöng og yfirleitt allt sem hann telur að hægt sé að bjóða eyrum fólks seint á sunnudagskvöldi.

Auðlindin

Auðlindin fjallar um íslenskt atvinnulíf og verður á dagskrá daglega á báðum rásum strax eftir kvöldfréttir kl 18.15.

Á hljóðbergi

Þættirnir eru fléttuþættir, heimildaþættir og leikið efni, sem kemur víðsvegar að og fylgt úr hlaði með inngangi og ýmsum nytsamlegum upplýsingum.

Á réttri hillu

Í þáttunum verður rætt við fólk sem hefur starfað af áhuga og ástríðu við ákveðin málaflokk í langan tíma, fólk sem hefur sinnt starfi sínu svo vel að eftir því hefur verið tekið. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir

Á sporbraut

Í þættinum Á sporbraut er fjallað um alþjóðamál og mannréttindi. Umfjöllun og umræður um ýmis þau mál sem hæst ber á góma í alþjóðasamfélaginu. Gestir þáttarins eru sérfræðingar hvaðanæfa að. Umsjón: Edda Jónsdóttir

Á sporbraut

Í léttri sumarferð um heima og geima í fylgd valinkunnra leiðsögumanna.


- B - efst á síðu!

Blátt og rautt

Bernska og unglingsár í tveim heimum. Höfundar eru Lena og Árni Bergmann. Árni les sína kafla, en Guðrún Ásmundsdóttir kafla Lenu.


- D - efst á síðu!

Drottning hundadaganna

Sjö þátta röð sem gerð var 1998, en flutt á ný í tilefni þess að í sumar eru tvær aldir liðnar síðan Jörgen Jörgensen, sem Íslendingar nefndu Jörund hundadagakonung, gerði stjórnarbyltingu og tók völdin hér á landi. Umsjón: Pétur Gunnarsson.


- E - efst á síðu!

Eins og dýr í búri

Flétta eftir Viðar Eggertsson. Meginuppistaða þáttarins er frásögn móður sem verður að láta börn sín frá sér.

Ekkert er eins og var

Opin Stjórnsýsla á netinu. Um áhrif upplýsingatækni á samfélagið, stjórnmál og stjórnsýslu. Umsjón: Haukur Arnþórsson

Ellismellir

Í þáttunum er rætt við eldra fólk um líf þess og viðhorf. Þættirnir eru unnir í samstarfi við Rannsóknarsjóð Hrafnistu.


- F - efst á síðu!

flakk

Í þáttunum er flakkað um hugmynd, stað eða hvaðeina sem umsjónarmanni dettur í hug hverju sinni. Á stundum getur umfjöllunarefnið tengst líðandi stundu, fréttum eða öðru sem er uppi á teningnum í samfélaginu

flakk

Fléttu- og heimildaþættir

Flækingur

Í hverjum þætti er tekinn fyrir ákveðinn staður, þorp eða eyja. Rætt við fólkið sem þar býr til þess að draga upp eins konar mannlífsmynd af staðnum.

Framtíð lýðræðis

Ágúst Þór Árnason, kennari við Háskólann á Akureyri, hefur fengið ýmsa fræðimenn úr heimspeki, stjórnmálafræði og lögfræði, auk nokkurra þátttakenda í stjórnmálum, til þess að setjast við hljóðnemann.

Friður í höndum kvenna

Friður í höndum kvenna er heimildaþáttaröð um friðaruppbyggingu á Balkanskaga. Meðal annars er rætt við átta Íslendinga sem starfað hafa hjá UNIFEM á Balkanskaga. Umsjón: Edda Jónsdóttir

Framtíð lýðræðis

Færibandið er á dagskrá Rásar 2 á mánudagskvöldum. Þátturinn er í umsjón Bubba Morthens.


- G - efst á síðu!

Gatan mín

Þættir Jökuls Jakobssonar nutu mikilla vinsælda hlustenda Ríkisútvarpsins þegar þeir voru frumfluttir 1970.

Gárur

Ýmsir ólíkir málaflokkar koma upp á borð í alþjóðastjórnmálum. Má þar nefna alþjóðaviðskipti og hagfræði, umhverfismál, öryggis- og varnarmál, samgöngur, fjölmiðlun og tækniþróun.

Gullöld revíunnar

14 þátta röðinni „Gullöld revíunnar“ verður fjallað um íslenskar revíur og revíusöngva allt frá 19. öld til 1960, en innan þessa tímabils urðu hér til vinsælar revíur. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir

gylfi Þ Gíslason

Gylfi Þ. Gíslason var vel þekktur fyrir þekkingu sína á klassískri tónlist. Hann hafði einstaka hæfileika til að kynna tónlist á alþýðlegan hátt og gerði það m.a. með tónlistarþáttum í Útvarpinu í kring um aldamótin.


- H - efst á síðu!

H og M

Glefsur úr þættinum H & M á Rás 2 sem er á dagskrá alla virka daga milli kl. 9 og 11 í umsjá Heiðu Ólafsdóttur og Margrétar Erlu Maack.

Harðgrýti fátæktar

Markmiðið með þáttaröðinni er að skapa vettvang til að ræða fátækt og mismunandi birtingarmyndir hennar. Umsjón: Edda Jónsdóttir

Hið fagra sigrar að lokum

Í þáttunum er fjallað um líf og tónlist Dimitri Shostakovich. Þeir voru á dagskrá í tengslum við flutning Sinfóníuhljómsveitar Íslands á sinfóníunum.

Heimur hugmyndanna

Ævar Kjartansson hefur fengið Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma.

Heimsauga

Í þættinum verður gægzt yfir yztu sjónarrönd. Sagt frá forvitnilegum hlutum sem eru að gerast útí heimi og snerta okkur með einum eða öðrum hætti. Umsjónarmaður Magnús R. Einarsson

heimsmenning

Um erlenda tónlistarmenn sem settu svip á íslenskt tónlistarlíf á fjórða áratug síðustu aldar eins og Franz Mixa, Viktor Urbancic, Róbert Abraham Ottóson, Heinz Edelstein, Carl Billich og Fritz Weisshappel.

Hlustaðu ef þú þorir

Þáttaröð um tónlist á 20. öld. Umsjónamenn: Hanna G. Sigurðardóttir og Sigríður Stephensen.

Hringsól

Rætt er við fólk, sem dvalið hefur langdvölum í fjarlægum löndum.

Hulduherinn hættir

Þátturinn fjallar um afnotadeild Ríkisútvarpsins en afnotagjöldin voru lögð af um áramótin. Starfsfólk deildarinnar hefur starfað þar í langan tíma og lent í ýmsu á löngum ferli.

Hvað er að heyra?

Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir Liðstjórar: Gautur Garðar Gunnlaugsson og Steinunn Birna Ragnarsdóttir.


- Í - efst á síðu!

Í boði náttúrunnar

Umsjón: Guðríður Gissurardóttir og Jón Árnason Um matjurtarækt og er ætlað að leiðbeina og vekja áhuga fólks á að rækta sínar eigin matjurtir, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.

Í heyranda hljóði

Í heyranda hljóði er vettvangur fyrir grófklippt málþing þar sem fjallað er um samfélagsmál, menntamál af ýmsu tagi og fræðsluefni ýmis konar.

Í garðinum þar sem ástin sefur

Um franska tónskáldið Olivier Messiaen. Viðmælendur í þættinum eru Einar Jóhannesson, Árni Heimir Ingólfsson, Rut Ingólfsdóttir og Douglas A. Brotchie. Lesari er Óskar Ingólfsson. Umsjón hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir.

Í nýjum heimi

Um leikkonuna Brynhildi Guðjónsdóttur og leit hennar að ambáttinni Þorgerði Brák. Rætt við Gísla Sigurðsson og Brynhildi Guðjónsdóttur. Umsjón hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir.

Ísland og ESB

Í þáttunum Ísland og Evrópusambandið verður meðal annars farið yfir sögu Evrópusamrunans og rakið hvernig samstarf aðildarríkjanna hefur aukist og færst yfir á ný svið. Umsjón: Halldóra Friðjónsdóttir.

Í mótbyr

Siglum rétta leið þrátt fyrir mótbyr. Alla virka daga nema föstudaga í Samfélaginu í nærmynd.


- J - efst á síðu!

Krossgötur

Menningarstofnunin margverðlaunaða Baggalútur verður með Jóladagatal á Rás 2 á aðventunni.Herlegheitin eru á dagskrá í Popplandinu góða virka daga kl. 9.30 og 13.30 og svo hjá Bergssyni & Blöndal á laugardagsmorgnum.


- K - efst á síðu!

Krossgötur

Herinn er farinn og jöklarnir hopa. Við virðumst vera á leiðinni úr köldu tímabili yfir í heitt tímabil. Undan jöklum hálendisins og íshellu kaldastríðs kemur í ljós landslag sem fólk hefur ekki séð áður. Hvað er það nákvæmlega sem blasir við okkur?

Kvika

Þáttur helgaður kvikmyndum, innlendum sem erlendum. Einnig er stundum fjallað um sjónvarp. Umsjón: Sigríður Pétursdóttir.

Kvöldgestir

Jónas Jónasson tekur á móti kvöldgestum og ræðir við þá um þeirra líf og störf.

Kyrr kjör

Kyrr kjör eftir Þórarin Eldjárn. Höfundur les. – Þetta er söguleg skáldsaga og fjallar um skáldið Guðmund Bergþórsson


- L - efst á síðu!

Leynifélagið

Leynifélagið er útvarpsþáttur sérstaklega ætlaður börnum á aldrinum sex til tíu ára. Fundunum leynifélagsins er útvarpað beint til félagsmanna á Rás 1.

Litla Hafmeyjan

Spariþáttur íslensku þjóðarinnar gleður landsmenn á föstudagskvöldum í sumar. Doddi litli stendur vaktina í Efstaleitinu í Reykjavík á meðan Andri Freyr lætur gamminn geysa frá kóngsins Köbenhavn.

Lóðrétt eða lárétt

Í þessum þætti á Rás 1 er reynt að fá til viðtals kunnáttufólk á þeim sviðum sem snerta trúarbrögð.


- M - efst á síðu!

Maísólin

Ljóð Halldórs Laxness „Maístjarnan” hefur með tíð og tíma orðið þjóðareign. Í þættinum Maísólin okkar, maísólin hans verður ljóðið skoðað í þeim ólíku samhengjum sem það hefur birst í.

Mánafjöll

Í þáttunum er ungt fólk í brennidepli en fátt annað er gefið þegar hlustendur þræða einstigi og gljúfur og klífa háa tinda Mánafjalla. Þá er horft til sköpunar og frumkvæðis, framtíðar og krafta ungs fólks.
Umsjón: Marteinn Sindri Jónsson

Með á nótunum

Í þáttunum er skyggnst inn í undraheim klassískrar tónlistar á nýstárlegan hátt.

morgunútvarp

Morgunútvarp Rásar 2 er í umsjón Margrétar MArteinsdóttur, Freys Eyjólfssonar og Sveins H. Guðmarssonar. Þátturinn er á dagskrá Rásar 2 frá 7 til 9 alla virka daga.

morgunútvarp

Valið efni úr Morgunútvarpi Rásar 2 sem hætti göngu sinni haustið 2009.

morgunvaktin

Valið efni af Morgunvakt Rásar 1 sem nú hefur hætt göngu sinni. Morgunvaktin var fréttaþáttur í umsjá Fréttastofu Útvarps í Reykjavík og á svæðisstöðvum RÚV.


- N - efst á síðu!

Nei, hættu nú alveg

Spurningaþátturinn Nei hættu nú alveg í umsjá Vilhelms Antons Jónssonar er á dagskrá á sunnudögum milli klukkan 15 og 16.


- O - efst á síðu!

Orð skulu standa

Okkar á milli eru viðtalsþættir sem koma víðs vegar að af landinu. Í þáttunum segja gestir frá lífshlaupi sínu og velja tónlist í þáttinn.

Orð skulu standa

Þátttakendur í hljóðstofu spreyta sig á orðum, orðnotkun, orðasamböndum og krossgátum. Óhætt er að fullyrða að mörg orðin virka mjög framandi þó rammíslensk séu.


- P - efst á síðu!

Petri Sakari

Petri Sakari, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands segir frá sinfóníum þjóðartónskálds Finna. Hann ræðir einnig um stór verk Sibeliusar sem enn eru óflutt á Íslandi.

Poppland

Glefsur úr Popplandi á Rás 2

Prússar: Ris og fall járnríkis

25. febrúar 1947 undirrituðu fulltrúar herstjórnar Bandamanna í Berlín lög sem mæltu fyrir að Prússneska ríkið yrði lagt niður. Prússland var eina þýska sambandsríkið sem hlaut þau örlög.

Prinsinn

Prinsinn er laufléttur laugardagsþáttur í umsjá Andra Freys Viðarssonar, sem líklega er betur þekktur sem sporðurinn á Litlu hafmeyjunni.


Pönk á Íslandi

Pönk og Kópavogur eru tengd sterkum böndum. Hljómsveitin Fræbbblarnir var stofnuð í MK veturinn 1978 með tónleikum á fyrstu Myrkramessu skólans.


- R - efst á síðu!

Rannsóknarskýrslan lesinn

Rannsóknarskýrsla nefndar um bankahrunið. Leikarar úr Borgarleikhúsinu lesa rannsóknarskýrsluna.

Raddir barna

Íslensk ungmenni fjalla um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Tíu ungir dagskrárgerðarmenn munu í þessum þáttum fjalla um sáttmálann út frá ýmsum hliðum. Allur frágangur: Elísabet Indra Ragnarsdóttir

- S - efst á síðu!

Sagnaslóð

Merkisatburðir úr sögunni eru dregnir fram í dagsljósið og bornir á borð hlustenda, og skáld og rithöfundar ásamt hvunndagshetjum fá sína umfjöllun.

Samræða á sunnudegi

Ævar Kjartansson ræðir við nokkra eintaklinga um siðfræði, samfélagsmál og trú.

Seiður og hélog

Seiður og hélog þáttur um bókmenntir hér og nú, frá útlöndum og áður fyrr. Í þættinum er sagt frá nýjum og stundum líka eldri bókum eftir erlenda höfunda en einnig stundum eftir íslenska höfunda.

Seiður og hélog

Þáttaröðin fjallar um íslenskar revíur eftir 1960. Umsjónar maður: Una Margrét Jónsdóttir (10 þátta röð)

Skáldsögur Ólafs Jóhanns Sigurðssonar

Lestrarnir sem eru hér á hlaðvarpinu eru upprunalegar upptökur RÚV af sögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar um Pál Jónsson blaðamann.

Skorningar

Sumarþáttur um bókmenntir og menningu í umsjón nokkura ungra bókmenntafræðinga. Óvissuferð um alls konar gilskorninga skáldskapar og bókmennta.

Sólarglingur

Farið verður víða í leit að efni og rætt við fjölmarga víða um land. Kristín Einarsdóttir fjallar um fólk, fjöll, staði, sögur, og samtímann.

Haukur Ingvarsson fjallar um ævi og störf Steins Steinarrs.

Stjörnukíkir

Í þáttunum verður rætt við ungt skapandi fólk sem miðlar listaverkum sínum og ræðir viðhorf sín til grunnskólans og íslenska menntakerfisins.

stjornskipan

Umræða í fjórum þáttum um stjórnarskrárbreytingar og stjórnlagaþing. Umsjónarmenn: Ágúst Þór Árnason og Ævar Kjartansson

sumarnamskeid

Nokkrir þættir fyrir Námskeið Háskóla Íslands.

stjornskipan

Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar

Svartfugl

Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson. Höfundur les. Hljóðritað 1956. Með góðfúslegu leyfi Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri og erfingja Magnúsar Ásgeirssonar þýðanda.


- T - efst á síðu!

Til Manuelu

Manuelu Wiesler flautuleikara sem lést í desember 2006 er minnst í tali og tónum í þættinum Til Manuelu.


Anton Tsjekhov: Maðurinn og verk hans.

Tsjekhov er meðal helstu skálda síns tíma og verk hans hafa orðið sígild. Hann lagði stund á tvær greinar skáldbókmennta, smásagnagerð og leikritun.


- Ú - efst á síðu!

Úr gullkistunni

Í þættinum er flutt ýmiss konar talað mál úr segulbandasafni Útvarpsins, erindi, viðtöl og upplestrar sem varðveist hafa frá fyrri tíð.

Úr safni Ríkisútvarpsins - talað mál

Talað mál í safni útvarpsins er af ýmsum toga. Má þar finna erindi, sögulestur, viðtöl, fréttir, fréttaannála, spurningaþætti og margt fleira sem varðveist hefur allt frá fyrstu árum útvarpsins.

Úr safni Ríkisútvarpsins - tónlist

Hér verður miðlað úrvali úr því efni sem útvarpið hefur hljóðritað sérstaklega fyrir dagskrána og verður þess gætt að draga upp sem heilstæðasta mynd af tónlistardagskrá fyrri ára.

Útvarpsleikhúsið

Þátturinn er í umsjón Bergs Ebba Benediktssonar en einnig hefur hann sér til fulltingis einvala lið raunverulegra og skáldaðra gesta.

Útvarpsleikhúsið

Leiklistarflutningur í útvarpi á sér langa sögu og hófst hér á landi skömmu eftir stofnun Ríkisútvarpsins og var orðinn fastur liður í dagskrá þess 1937.

Út um græna grundu

Náttúran, umhverfið og ferðamál er meðal þeirra málaflokka sem teknir eru fyrir í þættinum Út um græna grundu á laugardagsmorgnum.


- V - efst á síðu!

Vikulokin

Farið er yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Þátturinn er á vegum Fréttastofu Útvarps og er á dagskrá á laugardögum kl. 11-12.

vistaskipti

Vistaskipti er röð sex þátta sem fjallar fólk á tímamótum og hvernig lausnir það finnur á sínum málum í kreppunni. Umsjón:Guðrún Helga Sigurðardóttir blaðamaður

Vændi á Íslandi

Daginn sem Alþingi lauk störfum fyrir kosningarnar 2009, voru samþykkt lög sem banna kaup á kynlífsþjónustu.
Bannið er í anda sænsku laganna frá árinu 1999.


- Þ - efst á síðu!

Þemakvöld

Minningar, tónlist, bókmenntir, gleði og spjall. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Þættir úr sögu íslenskrar tónlistar

Í þáttum þessum er rakin saga íslenskrar tónlistar allt aftur frá landnámi og fram á okkar daga.


- Ö - efst á síðu!

Öll þua klukknaköll

Séra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ræðir í þessum þáttum við konur sem bjuggju á prestssetrum víðs vegar um landið á síðustu öld. Í viðtölum kemur fram mynd af íslenska dreifbýlinu um miðja 20. Öldina.

efst á síðu!Upp

Sækja iTunes

itunes logo

Smellið á myndina til að nálgast iTunes á heimasíðu Apple.

Leiðbeiningar

Hlaðvörp má opna með forritinu iTunes. Nóg er að smella á tengil þáttar og hlaðast þá þættirnir sjálfkrafa inn í iTunes. Einnig má opna þættina beint í vafra og hlusta á þá þar.


Nánar »

Athugið

Öllu efni sem miðlað er á þessari síðu er stranglega bannað að dreifa eða fjölfalda á nokkurn hátt né er það ætlað til opinbers flutnings. Efnið er eign Ríkisútvarpsins og miðlun þess eingöngu ætluð til persónulegra einkanota hlustenda RÚV.

3. september 2010

Streymiþjónusta