Kýpur og ESB, lítið land i ESB
10.12.2012 - 12:17
Hvernig vegnar litlum löndum í Evrópusambandinu? Kýpur gekk einhuga í ESB 2004, er nú að semja um björgunaraðstoð frá ESB auk þess að fara með formennskuna í ESB um þessar mundir. Það var með Kýpur eins og Finnland – aðild að Evrópusambandinu þykir auka pólitískan stöðugleika í ljósi stríðra nágranna. Nágrennið við Tyrki er aldagamalt stríðsefni á Kýpur og allir stjórnmálaflokkar studdu aðild eyjarinnar að ESB. Það var því ekki haldin þjóðaatkvæðagreiðsla. Nú fer Kýpur með formennskuna í Evrópusamstarfinu og vill gjarnan skila aðildarviðræðum Íslendinga sem lengst svo fleiri smáríki, með sinn skilning á samstarfinu bætist í hópinn. Sigrún Davíðsdóttir kynnti sér formennskuáætlun Kýpur og ræddi við Nikos Christodoulides talsmann fastanefndar Kýpur hjá ESB.
Lesa meira
Lesa meira
Viggó Viðutan
10.12.2012 - 10:07
Nýlega kom út ný bók í bókaflokknum um Viggó Viðutan. Þetta þykja auðvitað stórtíðindi í heimi myndasagna. Þessi bók tilheyrir nýrri bókaröð sem fjallar um æskuár Viggós – Viggó hinn unga þar sem hann leikur sér við besta vin sinn Júlla og eins og endranær fremur hann prakkarastik af guðs náð.
Lesa meira
Lesa meira
Síðasta kosningaloforðið svikið
09.12.2012 - 12:25
Hægristjórn Lýðflokksmanna á Spáni hefur nú svikið öll sín kosningaheit í efnahagsmálum á því tæpa ári sem hún hefur verið við völd. Þvert á kosningarskrá Lýðflokksins hefur stjórnin m.a. hækkað skatta, gert uppsagnir ódýrari, komið á svonefndri samgreiðslu lyfja þar sem sjúklingar taka þátt í kostnaði og er að innleiða gjaldtöku vegna málaferla. Og nú hefur hún ákveðið að fara ekki að lögum um árlega endurskoðun eftirlauna í samræmi við vísitölu neysluverðs. Þar með stendur ekkert eftir af því sem hún lofaði. Stutt er síðan Rajoy forsætisráðherra sagðist ekki mundu beita niðurskurðarhnífnum á eftirlaun. Það væri „rautt strik“ sem hann stigi aldrei yfir.
Lesa meira
Lesa meira
Skiptir Nato máli?
06.12.2012 - 23:48
Það er af sem áður var, á tímum kalda stríðsins, að Norður Atlantshafsbandalagið, Nato, væri efst á baugi í öryggismálum. Nato skiptir orðið harla litlu máli, segir Anatole Lieven prófessor í hernaðarfræðum við King’s College í Lundúnum. Sigrún Davíðsdóttir tók Lieven tali nýlega á skrifstofu hans í miðborg Lundúna, bæði til að heyra sýn hans á Nato en einnig á aðra þætti öryggismála í heiminum. Sigrún spurði Lieven fyrst hvort Nato skipti enn máli.
Lesa meira
Lesa meira
Geta fjölþjóðafyrirtæki borgað skatt að vild?
06.12.2012 - 23:43
Greiðslur til erlendra dótturfélaga stórfyrirtækisins Starbucks hafa forðað fyrirtækinu frá skattgreiðslum í Bretlandi. Nú lofar Star bucks að greiða meiri skatt í Bretlandi. En ýmsir spyrja hvort fjölþjóðafyrirtæki geti þá í raun ráðið hvort þau borgi skatt eða ekki. Skattamál fjölþjóðafyrirtækja hafa verið ákaft rædd undanfarin misseri, ekki síst af því fjölmiðlar eins og dagblaðið Guardian hafa grafið upp athyglisverðar staðreyndir í þessum efnum. Athyglin hefur beinst að fyrirtækjum eins og Starbucks, Amazon og Google. Í dag skilaði svo bresk þingnefnd skýrslu þar sem skattstofan breska er harðlega gagnrýnd fyrir linku og dugleysi varðandi skattmál fjölþjóðafyrirtækja.
Lesa meira
Lesa meira
Paris Saint-Germain
06.12.2012 - 20:10
„Hér er París“ syngja áhangendur stórliðsins Paris Saint-Germain þegar leikmenn ganga á völlinn Parc des Princes sem er mikill orrustuvöllur og þekktur bæði fyrir frábæra stemningu en sömuleiðis skelfileg skrílslæti og ofbeldi.
Lesa meira
Lesa meira
Írar eru rólegir þó enn sé niðurskurður
05.12.2012 - 18:00
Írska stjórnin kynnti í dag fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Þar er gert ráð fyrir umtalsverðum skattahækkunum og niðurskurði í opinberum útgjöldum. Þetta er sjötta fjárlagafrumvarpið af því tagi sem írsk stjórnvöld leggja fyrir þingið. Vonir standa til að í þetta sinn verði hægt að spara um 3,5 milljarð evra, sem jafngildir ríflega 570 milljörðum íslenskra króna.
Lesa meira
Lesa meira
Fjölgar í miðstétt í Rómönsku-Ameríku
01.12.2012 - 13:23
Í Rómönsku Ameríku og Karíbahafslöndum hefur miðstéttarfólki fjölgað sem aldrei fyrr með auknum hagvexti síðustu ár. Fjölgunin nam um 50 prósentum tímabilið 2003 til 2009. Þá fjölgaði fólki í miðstéttum úr 103 milljónum í 152 milljónir. Miðstéttir samsvara nú 30 prósentum íbúa. Samt er ekki enn hægt að tala um að löndin í þessum heimshluta séu orðin að miðstéttasamfélögum því að 30 prósent íbúa lifa við fátækt. Þetta segir Alþjóðabankinn í nýrri skýrslu.
Lesa meira
Lesa meira
Slagurinn um Susan Rice
29.11.2012 - 16:54
Hver konan á fætur annarri hefur verið utanríkisráðherra Bandaríkjanna undanfarin ár – Madeleine Albright, Condoleezza Rice og að
sjálfsögðu Hillary Clinton sem senn lætur af þessu embætti. Og nú er í gangi hér í Washington harður slagur um hver tekur við af Hillary. Allt bendir til að Barack Obama Bandaríkjaforseti hafi mestan hug á að tilnefna í embættið Susan Rice, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Rice hefur að baki töluverða reynslu í bandarísku utanríkisþjónustunni en það sem meira er hún þykir handgengin Bandaríkjaforseta og Obama hefur mikið álit á sendiherranum.
Lesa meira
Lesa meira
Brauðið helga
27.11.2012 - 11:05
Ein mikilvægasta fæða mannsins er brauð og saga brauðsins er samofin sögu mannkyns. Brauðið er nátengt daglegu lífi mannsins en brauðát hefur líka verið helgiathöfn þúsöldum saman; brauðið tengist nefnilega margskonar trúarbrögðum og hátíðum. Þegar Jesús Kristur snýr aftur eftir krossfestinguna býður hann félögum sínum upp á brauð. Hann brýtur brauðið og færir þeim. Og er í raun að segja: Ég er brauðið. Brauðið er ég. Og Brauðið er Fögnuður Lífsins og Konungur Sannleikans.
Lesa meira
Lesa meira

Bogi Ágústsson
Freyr Eyjólfsson
Gísli Kristjánsson
Guðjón Helgason
Guðmundur Pálsson
Gunnar Hrafn Jónsson
Gylfi Ólafsson
Kristinn R. Ólafsson
Matthías Már Magnússon
Ragnheiður Eiríksdóttir
Rún Ingvarsdóttir
Sigrún Davíðsdóttir
Sveinn Guðmarsson
Sveinn Helgason
Þorgerður E. Sigurðardóttir