Obama lét skattstjórann fjúka

Barack Obama Bandaríkjaforseti á nú í vök að verjast á nokkrum vígstöðvum og repúblikanar á Bandaríkjaþingi hugsa sér gott til glóðarinnar að þjarma enn frekar að forsetanum. Reyndar er líka sótt að honum af vinstri vængnum þó gagnrýnin sé harðari frá hinum hefðbundnu andstæðingum.
Lesa meira

Breytingar á byssulögum í Bandaríkjunum

Hert lög um byssueign hafa að undanförnu verið samþykkt í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna og fleiri gætu bæst við á næstunni. Í mörgum ríkjum hefur þróunin hinsvegar verið í þveröfuga átt, hömlum hefur verið létt af meðferð skotvopna. Viðbrögðin við fjöldamorðunum í Newtown í Connecticut í desember eru því með afar mismunandi hætti.
Lesa meira

Skotgrafahernaðurinn heldur áfram á nýju ári

Nýtt Bandaríkjaþing er tekið til starfa þar sem valdahlutföllin milli flokkanna eru óbreytt. Repúblikanar eru með meirihluta í fulltrúadeildinni og demókratar eru fjölmennari í öldungadeildinni þar sem þeir styrktu raunar stöðu sína í kosningunum í nóvember.
Lesa meira

Slagurinn um Susan Rice

Hver konan á fætur annarri hefur verið utanríkisráðherra Bandaríkjanna undanfarin ár – Madeleine Albright, Condoleezza Rice og að sjálfsögðu Hillary Clinton sem senn lætur af þessu embætti. Og nú er í gangi hér í Washington harður slagur um hver tekur við af Hillary. Allt bendir til að Barack Obama Bandaríkjaforseti hafi mestan hug á að tilnefna í embættið Susan Rice, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Rice hefur að baki töluverða reynslu í bandarísku utanríkisþjónustunni en það sem meira er hún þykir handgengin Bandaríkjaforseta og Obama hefur mikið álit á sendiherranum.
Lesa meira

Vígreifur forseti á fréttamannafundi

Barack Obama Bandaríkjaforseti segist hafa fengið skýrt umboð frá bandarísku millistéttinni í forsetakosningunum og hann muni leita allra leiða til að gæta hagsmuna þessa hóps. Skattar á venjulegt launafólk eigi ekki að hækka um áramótin en hinsvegar hafi þeir ríkustu í samfélaginu efni á að greiða meira. Þetta var meðal þess sem forsetinn sagði á fréttamannafundi í Hvíta húsinu nú á miðvikudaginn sem fréttamaður RÚV sótti.
Lesa meira

Fjölbreytt flóra stuðningsmanna Obama

Sigur Baracks Obama í bandarísku forsetakosningunum byggði á breiðri skírskotun hans til ólíkra hópa í bandarísku samfélagi. Um 90 prósent stuðningsmanna Mitt Romneys voru hvítir kjósendur sem eru ekki af rómönskum uppruna – eða „non-Hispanic whites.“ Kjósendahópur Obama var hinsvegar afar fjölskrúðugur – hann fékk t.d. stuðning um eða yfir 90% blökkumanna og ríflega 70 prósenta fólks af rómönskum uppruna og svo auðvitað margra hvítra þó hann væri þar í minnihluta.
Lesa meira

Úrslitastund í slag Obama og Romneys

Það er komið að úrslitastundu í bandarísku forsetakosningunum – kjördagur er þriðjudaginn 6. nóvember. Barack Obama forseti er öllu sigurstranglegri að mati sérfræðinga heldur en Mitt Romney, forsetaframbjóðandi repúblikana. Fylgi þeirra er hnífjafnt á landsvísu en forsetinn hefur hinsvegar sterkari stöðu í mun fleiri af hinum svokölluðu lykilríkjum þar sem litlu munar á fylgi þeirra tveggja. Sá munur er reyndar víða svo lítill að hann er innan innan skekkjumarka. Á mannamáli: Úrslitin eru hvergi nærri ráðin.
Lesa meira

Möppur, Mitt Romney og baráttan um atkvæði kvenna

Ummæli Mitt Romneys um „möppur fullar af konum“ í kappræðunum við Barack Obama á þriðjudagskvöld hafa vakið mikla athygli. Þau hafa farið eins og eldur í sinu um netið og mörgum konum hefur fundist að ríkisstjórinn fyrrverandi væri að tala niður til þeirra.
Lesa meira

Talið niður í kappræður forsetaframbjóðenda

Stemmningin hér í Hofstra-háskólanum á Long Island er rafmögnuð nú þegar aðeins eru nokkrir klukkutímar þangað til forsetaframbjóðendurnir Barack Obama og Mitt Romney mætast í öðru einvígi sínu af þremur
Lesa meira

Hart barist um Ohio

Stjórnmálaskýrendur hér vestan hafs eru lunknir við að finna upp ný hugtök og það nýjasta er FLOVA. Það er skammstöfun á ríkjunum þremur sem skipta hvað mestu máli í baráttunni um Hvíta húsið – Flórída – Ohio og Virginía.
Lesa meira