Stoðir og Stytta
Hlusta
***
Í New York er slitastjórn Glitnis að reka mál á hendur Pálma Haraldssyni, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Jóni Sigurðssyni fyrrum forstjóra FL Group og fleirum til að innheimta sem samsvarar um 240 milljörðum króna. Í stefnunni eru raktar fimm sölufléttur, sem dæmi um óeðlilegar fyrirgreiðslu bankans.
En í viðskiptum þessara aðila er ein flétta í viðbót sem varðar mest Landsbankann þó Glitnir komi við sögu. Fléttan hefst sumarið 2008, rétt þegar peningaþurrðin var í algleymingi og engir peningar til að borga af lánum. Staða Fons í Landsbankanum vakti áhyggjur. Það var með Fons eins og fleiri á þessum tíma: Bankarnir gátu ekki lengur lánað þessum viðskiptavinum sem í mörgum tilfellum voru í hópi stærstu hluthafa bankanna. Í staðinn keyptu bankarnir eignir – og verðmatið var iðulega mjög hagstætt seljendunum.
Sumarið 2008 bárust fréttir um að Fons hefði slegið Íslandsmet í hagnaði þegar það seldi hlut sinn í Iceland fyrir 75-80 milljarða. Í rannsóknarskýrslunni er sagan ekki eins glæsileg. Stytta var stofnuð í júlí 2008 til að kaupa hlut Fons í Iceland. Þremur mánuðum síðar skuldaði Stytta 60 milljarða – fé sem dygði til að reka Alþingi Íslendinga í um 25 ár.
Skömmu eftir að Stytta er stofnuð gerast kaup og sölur milli Stoða, áður FL Group, Fons og Styttu. Kjarninn er að Stytta fær lán hjá Landsbankanum upp á 50 milljarða. Lánanefnd Landsbankans afgreiðir lánið milli funda, dæmigerð afgreiðsla vafasamra gjörninga eins og rannsóknarskýrslan sýnir glögglega. Glitnir afgreiðir sitt lán upp á tæpa sex milljarða 17. september þegar forráðamönnum Glitnis mátti vera ljóst að Glitnir rambaði á barmi gjaldþrots. Heimildamaður Spegilsins, tengdur Glitni, segir að engar forsendur hafi verið fyrir láninu til Styttu.
En af hverju er Landsbankinn að lána þessu nýja félagi 50 milljarða? Jú, lánið er liður í fléttu til að lagfæra lánastöðu. Landsbankinn lánar Styttu 50 milljarða til að kaupa Icelandhluti af Fons. Þá fara 50 milljarðar inn á reikning Fons í Landsbankanum – og þessa 50 milljarða á svo Fons að greiða Landsbankanum aftur til að bæta stöðu sína. Í bókum Landsbankans birtist þetta þá eins og einu félagi sé lánaðir 50 milljarðar og annað félag greiði svo niður skuldir sínar um 50 milljarða.
Eða þannig hugsaði stjórn Landsbankans sér þetta. En Fons fór ekki alveg eftir fyrirmælunum og borgar Landsbankanum ekki 50 milljarða til baka heldur 48 milljarða. Fons heldur sumsé 2 milljörðum eftir. Í viðtali við rannsóknarnefndina sagði Sigurjón Árnason bankastjóri Landsbankans að þetta hefði verið ‚vont‘. Og hvað gerði Fons við þessa 2 milljarða sumarið sem enga peninga var að fá? Það er ein hliðarsagan í Styttusögunni: Fons notar þá til að tryggja sér yfirráð yfir Iceland Express. Flugfélagið var svo flutt úr Fons áður en Fons fór í þrot í fyrra og Pálmi Haraldsson fyrrum aðaleigandi Fons er nú aðaleigandi Iceland Express.
Önnur athyglisverð hliðarsaga er að í þessum viðskiptum kasta Glitnir og Landsbankinn á milli sín ábyrgðum. Glitnir tekur ábyrgð á um helmingi Styttulánsins frá Landsbankanum og á móti tekur Landsbankinn ábyrgð á nokkrum vandræðalánum Glitnis til Existu, Milestone og fleiri.
En hver er þá eigandi Styttu? FL Group átti 36 prósent – en stóri eigandinn er félagið Blackstar, skráð á Mön. Blackstar er í eigu Malcolm Walker forstjóra Iceland-keðjunnar og viðskiptafélaga Baugs og Fons, auk tveggja annarra stjórnenda Iceland. Eignarhald Blackstar er ógagnsætt en í apríl 2006 fékk félagið um milljarð króna að láni frá Kaupþingi svo Blackstar hafði greinilega góð íslensk tengsl. Walker hefur ekki svarað fyrirspurn fréttastofu um Blackstar en hann hefur verið nátengdur umsvifum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
En hvernig er þá Stytta statt nú? Í stjórn þess er Bernhard Bogason lögmaður, býr nú í Lundúnum og svo einn af erlendum eigendunum. Félagið hefur ekki skilað ársreikningi fyrir 2009 en ársreikningurinn fyrir 2008 er risa tap. Þar kemur fram að á þessu ári á Stytta að greiða lán upp á 63 milljarða króna. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er skilanefnd Landsbankans að taka Styttu yfir og þar með hlutinn í Iceland-keðjunni sem skilar góðum hagnaði.
Styttusagan er enn eitt dæmi um undirtök Fons og tengdra aðila í Landsbankanum. Í raun stórfelldari tök en tök þeirra á Glitni. Stytta er í hnotskurn allt sem var að gerast sumarið 2008. Stytta er eitt fleiri félaga sem hefur lifað þó lengi hafi verið ljóst að eigendurnir gætu ekki staðið í skilum. Það er þetta langlundargeð í garð stærstu skuldaranna sem vekur athygli.
