Bhopal og Ólympíuleikarnir
Hvaða ábyrgð tekur fyrirtæki á sig þegar það kaupir fyrirtæki sem hefur orsakað umhverfisslys? Og hvað með afstöðu forráðamanna ólympíuleikanna til styrks frá svona fyrirtæki? Málið um Dow Chemicals og ólympíuframlag þess vekja viðbrögð í Englandi. Árið 1984 kom upp gasleki við Union Carbide í Bhopal á Indlandi þar sem skordýraeitur var framleitt. Eiturgas lagði yfir svæðið í kring. Nákvæmar tölur um mannslát í nágrenninu eru umdeildar, enn margt á huldu um slysið en það er talið að í kjölfar slyssins hafi 20-25 þúsund manns látið lífið. Stórfyrirtækið Dow Chemicals keypti Union Carbide 1999 og tók þar með yfir skuldbindingar vegna slyssins. Dow Chemicals hefur gert viðamikla samninga við bresku ólympíunefndina vegna leikanna í Lundúnum í sumar og fjármagnar meðal annars stórt plasthengi á aðalleikvanginum. Ýmsir álíta aðkomu Dow varpa skugga á leikana og meðlimur í undirnefnd leikanna hefur nú sagt af sér vegna málsins. Dow og ólympíunefndin halda þó fast í sitt samstarf.
***
Versta iðnaðarslys sögunnar var eiturgasleki í Bhopal á Indlandi í desember 1984. Verksmiðjan var í eigu Union Carbide samsteypunnar, indverskra ríkisbanka og yfirvalda. Um 20-25 þúsund manns eru taldir hafa látist vegna lekans, auk tugþúsunda sem ekki báru sitt barr á eftir. Rannsókn 2006 sýndi að yfir hálf milljón manna hlaut heilsutjón af. Slysið hefur verið deilumál æ síðan, bæði orsakir þess og eins skaðabætur. Union Carbide reiddi fram skaðabætur fimm árum eftir slysið en það eru enn eftirmál í gangi.
Slysið varð fyrir tæpum 28 árum en það kastar nú skugga sínum á ólympíuleikana hér í höfðborg Bretlands. Ástæðan eru samningar og fjárframlag Dow Chemicals, fyrirtækisins sem keypti Union Carbide 2001. Union Carbide er reyndar kunnuglegt nafnt á Íslandi. Fyrirtækið átti þátt í stofnun Íslenska járnblendifélagsins 1975 en dró sig út úr félaginu tæpu ári síðar og í staðinn kom norska fyrirtækið Elkem.
Afstaða Dow Chemicals er að Bhopal slysið sé uppgert mál. Dow hefur lýst því yfir nú sem áður að félagið hafi staðið við allar sínar skuldbindingar. Það eigi ekki að gleyma slysinu en heldur ekki að endurskrifa söguna. En það eru ekki allir sem líta þannig á það. Reiðin vegna Bhopal mallar enn á Indlandi og víðar, slysið er öldungis ekki gleymt. Þegar það fréttist í fyrra að Dow væri styrktaraðili ólympíuleikanna nú í sumar skoruðu yfirvöld í héraði Bhopal á indverska íþróttamenn að hætta við þátttöku. Í byrjun desember minntust samtök fórnarlamba slyssins að vanda dagsins sem slysið varð. Þeir brenndu þá dúkkur sem áttu að tákna Sebastian Coe formann bresku ólympíunefndarinnar og aðra dúkku af formanni indversku nefndarinnar.
Það kom fram í fyrra að Dow væri styrktaraðili ólympíuleikanna og fyrirtækið hefur gert samning við framkvæmdanefndina upp á 100 milljónir punda. Dow er auk þess sérstakur styrktaraðili Ólympíusambandsins. Deilan sem hefur nú komið upp á yfirborðið varðar risastóran plastdúk. Dúkurinn er 900 metrar á lengd og 20 metrar á hæð og á að hanga í kringum aðalleikvanginn.
Í fyrstu stóð til að ríkið fjármagnaði dúkinn líkt og sjálfan leikvanginn. Þegar niðurskurðarfréttir skullu á í fyrra kom í ljós að ríkið var óviljugt að greiða fyrir dúkinn sem væri strangt til tekið ekki nauðsynlegur. Þá voru góð ráð dýr en Dow kom til sögunnar og var fúst til að borga framkvæmdina. Verðmiðinn hljóðar upp á 7 milljónir punda, tæpan 1,3 milljarð króna.
Þessi nýja framkvæmd hefur aftur dregið athyglina að Dow. Svo mjög að fulltrúi í einni undirnefnd leikanna hefur sagt af sér. Fulltrúinn heitir Meredith Alexander. Hún segir málið snúast um siðferði. Eftir að samtökin Amnesty International kynntu nefndarmönnum samband Dow og Bhopal segist hún ekki geta sætt sig við aðkomu Dow. Að hennar mati hefur Dow ekki hafa staðið við sínar skuldbindingar vegna Bhopal slyssins. Hún hafnar þeirri skoðun Dow að Bhopal komi fyrirtækinu ekki við af því það keypti Union Carbide ekki fyrr en löngu eftir slysið í Bhopal.
Eitt af því sem fór fyrir brjóstið á ýmsum var að nafn og merki Dow héngi þarna fyrir allra augum. Það verður þó ekki meðan á leikunum stendur. Það gilda strangar reglur um auglýsingar styrktaraðila. Það mega ekki hanga uppi auglýsingar á staðnum mánuði fyrir leikana og fram yfir leikana. Dow hafði upplýst að það yrðu hengdir upp strimlar með merki fyrirtækisins meðan leyfilegt er. Hvort fallið verður frá því nú þegar óánægjan er komin upp á yfirborðið er óljóst.
Og meðan þessi deila geisar er Bhopal málið enn í veltunni á Indlandi. Í fyrra hafnaði hæstiréttur Indlands því að málið yrði tekið upp aftur í ljósi nýrra vísbendinga um hvað gerðist þessa hörmulega daga í Bhopal í desember 1984. Þar er málið geymt en ekki gleymt.
*Þessi pistill var fluttur í Speglinum 27. janúar 2012.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
