Hverfa Grikkir úr evrunni?
16.05.2012 - 08:37
Leiðandi menn í evrópska seðlabankanum og evrópskum stjórnmálum hafa rætt opinskátt að hugsanlega verði Grikkir að yfirgefa evruna. Er mönnum alvara eða var aðeins verið að þrýsta á Grikki um að standa við samninga um fjárhagsaðstoð ESB og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins? Og hvað áhrif hafa enn aðrar kosningar? Síðan í fyrravor hefur tvisvar verið samið við Grikki um fjárhagslega aðstoð á móti efnahagsaðgerðum Grikkja með tilheyrandi langdregnum samningalotum og áköfum umræðum um hvort semdist eða ekki. Líka hvort Grikkir ættu sér framtíð í evrunni eða ekki. Óvissan í kjölfar nýafstaðinna kosninga sem leiða nú til enn annarra kosninga hefur aftur hleypt fjöri í vangaveltur og spádóma. Undanfarið hafa ýmsir leiðandi aðilar innan ESB í fyrsta sinn viðrað þann möguleika að evran stæði án Grikkja. Spurningin er hver áhrifin yrðu á önnur kreppuhrjáð ESB lönd, hvort menn meina þetta í alvöru eða hvort þetta er tilraun til að þrýsta á Grikki.
Lesa meira
Lesa meira
365 og eignir í skúmaskotum skattaskjóla
14.05.2012 - 22:33
Það á að upplýsa hverjir eiga íslenska fjölmiðla – og Fjölmiðlanefnd birtir nöfn eigenda á vefsíðu sinni. 365 miðlar, stærsta fjölmiðlaveldi á Íslandi í einkaeigu er í eigu félaga sem hverfa út á aflandssvæði og ekkert sem hönd á festir um raunverulega eigendur. Lögin um eignarhald á fjölmiðlum áttu að ýta undir gagnsæi í þeim efnum. En Fjölmiðlanefnd, sem á að halda utan um þessar upplýsingar, hefur engin tæki til að kanna til hlítar upplýsingar um eignarhald. Ákvæðið í lögunum um gagnsæi er byggt á tillögum þverpólitískrar nefndar frá 2005. Nú liggur fyrir Alþingi nýtt frumvarp þar sem er tekið á þessu en óljóst hver framvinda þess verður. Spegillinn fór í saumana á eignarhaldi 365 miðla, eins og það birtist á vefsíðu Fjölmiðlanefndar. Slóðin endar á aflandssvæðum og ómögulegt að sjá af félagaupplýsingum hvort Ingibjörg Pálmadóttir, sem sögð er eigandi 365 miðla, á þau félög eða ekki.
Lesa meira
Lesa meira
Uppgangur evrópskra hægri-jaðarflokka
13.05.2012 - 13:10
Árangur grísks fasistaflokks hefur dregið athyglina að árangri og stöðu evrópskra hægri jaðarflokka og stöðu þeirra. Þessir flokkar urðu fyrst áberandi evrópskum stjórnmálum á tíunda áratugnum með endurfæddum ítölskum fasistum og danska Framfaraflokknum sem hófst reyndar sem andóf gegn sköttum og ríkisbákninu snemma á áttunda áratugnum. Hliðstæðir flokkar í Svíþjóð og Finnlandi hafa náð eyrum kjósenda og einnig breskir flokkar. Það er ekki hægt að setja alla þessa flokka undir sama hatt, sumir eru öfgafyllri en aðrir en uppsveifla þeirra vekur spurningu um hver hefur verið leið þessara flokka inn á svið hefðbundinna stjórnmála.
Lesa meira
Lesa meira
Grískar horfur
08.05.2012 - 23:46
Úrslit grísku þingkosninganna og erfiðleikar á stjórnarmyndun hafa valdið lækkun evrunnar og endurvakið titring í kringum samheldni evrulandanna. Í Grikklandi reikna menn alveg eins með að það þurfi að kjósa aftur innan skamms. Antonis Samaras leiðtogi stærsta gríska flokksins Nýs lýðræðis gafst upp á stjórnarmyndun eftir fimm klukkutíma. Alexis Tsipras leiðtogi næst stærsta flokksins, vinstribandalagsins Syriza ætlar sér fulla þrjá daga til að freista stjórnarmyndunar á grundvelli þess að endursemja um lánasamkomulagið við ESB og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Grikkir reikna þó alveg eins með að það verði kosið aftur og 17. júní nefndur sem hugsanlegur kjördagur. Þar með er evrusvæðið komið í sömu langdregnu sjálfhelduna og áður með tilheyrandi ákafaumræðum um framtíð evrunnar. Lánadrottnar eru þó tæplega alveg óviðbúnir. Það bjóst enginn við að þriðja samkomulagið um skuldavanda Grikkja væri hin endanlega lausn á lánavanda þeirra.
Lesa meira
Lesa meira
Óskhyggjan í algleymingi
03.05.2012 - 22:36
Sumir láta sig dreyma um að leysa krónuvandann með Kanada-dalnum. Er það raunhæf leið eða bara óskhyggja og von um einfaldar lausnir? Umræður um einhliða upptöku erlendrar myntar blossa upp aftur og aftur. Á formælendunum má skilja að þetta sé einfalt mál og leysi margvíslegan vanda. Og það virðist sama hversu mótrökin eru veigamikil – alltaf koma þessar hugmyndir upp og alltaf finna þær sér formælendur. Það er ástæða til umhugsunar hvernig á því stendur á því að óskhyggjan er hér í algleymingi – og eins hverjum er hagur í jafn ófullkominni lausn og einhliða upptöku.
Lesa meira
Lesa meira
Bæjar- og sveitastjórnarkosningar í Bretlandi
02.05.2012 - 18:50
Það er margt sem mæðir á David Cameron forsætisráðherra Bretlands þessa dagana. Á morgun fá kjósendur tækifæri til að segja sitt álit í bæjar- og sveitastjórnarkosningum víða um land, auk þess sem það er kosið um borgarstjóra í höfuðborginni. Kosningarnar munu gefa sterkar vísbendingar um stöðu stjórnarflokkanna, Íhaldsflokksins og frjálsra demókrata. Skoðanakannanir spá stjórninni fylgistapi en ef Íhaldsflokkurinn heldur borgarstjóraembætti höfuðborgarinnar þætti það sigur. Spillingarmál og efnahagsráðstafanir sem gagnast aðeins efnafólki grafa undan fylgi stjórnarinnar. Fylgistapið er Verkamannaflokknum í hag en vinsældir stjórnarandstöðunnar eru þó hvikular. Niðurstöður kosninganna í höfuðborginni gætu þó haft áhrif á landsmálin, þó síðar verði.
Lesa meira
Lesa meira
MP-banka-fjárfestirinn og uppljóstrarinn
08.02.2012 - 15:06
Starfsmaður Kaupþings í Lúxemborg lenti upp á kant við bankann rétt fyrir hrun vegna athugasemda um stöðu bankans. Nýju eigendurnir, sem einnig eiga í MP banka, eru ekki á að láta hann sleppa og hafa dregið starfsmanninn fyrir dóm. Fyrir hrun Kaupþings í Lúxemborg voru ýmsir erlendu starfsmennirnir mjög áhyggjufullir yfir stöðu bankans. Einn þeirra hafði samband við einn yfirmann Kaupþings á Íslandi en hlaut litlar þakkir fyrir ábendingarnar. Starfsmaðurinn benti líka fjármálaeftirlitinu í Lúxemborg á nokkur atriði. Hann hikaði við að segja upp en þegar hann gerði það var bankinn um það bil að fara í þrot. Þó David Rowland keypti bankann ekki fyrr en sumarið 2009 hefur hann samt séð ástæðu til að draga þennan starfsmann fyrir dóm. David Rowland er eins og kunnugt er stór hluthafi í MP banka.
Lesa meira
Lesa meira
Aflandskrónur og gjaldeyrisbraskið
08.02.2012 - 14:55
Seðlabankinn er að reyna að koma skikki á viðskipti með aflandskrónur en á sama tíma er verið að bjóða erlendum fjárfestum upp á aflandskrónufjárfestingar þar sem ekki er ljóst hvaðan krónurnar koma. Það voru ýmis göt á reglum um gjaldeyrishöftin framan af en það er fyrir löngu búið að stoppa í þau göt. Það er velta í aflandskrónum og Spegillinn veit um dæmi þar sem verið er að bjóða erlendum fjárfestum að fjárfesta í aflandskrónum. Það eru ýmsar hliðar á því máli en þar sem Seðlabankinn og íslensk yfirvöld munu eiga síðasta orðið, þegar höftunum verður aflétt, geta þetta ekki verið annað en áhættusöm viðskipti. En auðvitað eru til fjárfestar sem standast einmitt ekki slíkar fjárfestingar.
Lesa meira
Lesa meira
Bhopal og Ólympíuleikarnir
08.02.2012 - 14:50
Hvaða ábyrgð tekur fyrirtæki á sig þegar það kaupir fyrirtæki sem hefur orsakað umhverfisslys? Og hvað með afstöðu forráðamanna ólympíuleikanna til styrks frá svona fyrirtæki? Málið um Dow Chemicals og ólympíuframlag þess vekja viðbrögð í Englandi. Árið 1984 kom upp gasleki við Union Carbide í Bhopal á Indlandi þar sem skordýraeitur var framleitt. Eiturgas lagði yfir svæðið í kring. Nákvæmar tölur um mannslát í nágrenninu eru umdeildar, enn margt á huldu um slysið en það er talið að í kjölfar slyssins hafi 20-25 þúsund manns látið lífið. Stórfyrirtækið Dow Chemicals keypti Union Carbide 1999 og tók þar með yfir skuldbindingar vegna slyssins. Dow Chemicals hefur gert viðamikla samninga við bresku ólympíunefndina vegna leikanna í Lundúnum í sumar og fjármagnar meðal annars stórt plasthengi á aðalleikvanginum. Ýmsir álíta aðkomu Dow varpa skugga á leikana og meðlimur í undirnefnd leikanna hefur nú sagt af sér vegna málsins. Dow og ólympíunefndin halda þó fast í sitt samstarf.
Lesa meira
Lesa meira
Er komið úr tísku að borga skuldir sínar?
24.01.2012 - 17:47
Einu sinni lögðu menn metnað í að vera borgunarmenn fyrir skuldir sínar. Núna virðist gilda að ráða sér lögfræðinga til að hengja sig í lagakróka til að komast undan að borga skuldirnar. Írinn Patrick Quinn auðgaðist gríðarlega í írsku uppsveiflunni en er nú orðinn gjaldþrota þó hann hafi efni á að hafa her lögfræðinga í vinnu fyrir sig. Mál Quinns á sér íslenskar hliðstæður. Líkt og hefur heyrst hjá þeim sem fengu ofurlán hjá íslensku bönkunum segir Quinn bankann hafa lofað sér að ekki yrði gengið að veðum. Það er eins og það liggi í loftinu að það sé allt í lagi að auðgast með vafasömu hætti og nota svo fé til að verjast því að borga skuldir sínar, ekki til að borga þær. Það er af sem áður var þegar menn lögðu mikið á sig til að greiða skuldir sínar.
Lesa meira
Lesa meira

Bogi Ágústsson
Borgþór Arngrímsson
Eiríkur Guðmundsson
Gísli Kristjánsson
Guðjón Helgason
Gunnar Hrafn Jónsson
Gylfi Ólafsson
Ingólfur Bjarni Sigfússon
Kristinn R. Ólafsson
Matthías Már Magnússon
Sigrún Davíðsdóttir
Sveinn Guðmarsson
Sveinn Helgason