Kúrdinn sem kastaði öðrum skónum sínum og var varpað í fangelsi
Kúrdi nokkur hefur nú setið bakvið lás og slá á Spáni síðan hann var handtekinn fyrir tveimur árum eftir að hafa kastað skó að forsætisráðherra Tyrklands þá í heimsókn. Kúrdinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi þó að skóskotið hefði geigað. Dómstólar viðurkenna að þetta sé of þung refsing fyrir þetta tiltölulega léttvæga afbrot en lögin neyði þá til að dæma á þennan veg.
****
„Kúrdinn sem kastaði öðrum skónum sínum án þess að hitta og var varpað í fangelsi“ hljómar einsog titill á skáldsögu. En hér er enginn skáldskapur á ferðinni heldur hrár veruleikinn. Kúrdi nokkur að nafni Hokman Jóma, frá Sýrlandi, reif af sér annan skóinn og kastaði honum að Recep Tayyip Erdoĝan, forsætisráðherra Tyrklands, þegar hann var í heimsókn hér á Spáni fyrir tveimur árum. Þó að skórinn færi hvergi nærri Tyrkjanum var Kúrdinn dæmdur í þriggja ára fangelsi. Spænska dagblaðið El País birti grein um málið í gær.
Erdoĝan var í Sevilla, höfuðstað Andalúsíu, 22. febrúar 2010 að taka við verðlaunum. Hann var að koma útúr ráðhúsinu eftir athöfnina þegar Hokman Jóma kom auga á hann. Kúrdinn greip þá til þess ráðs að rífa af sér annan skóinn og kasta honum að forsætisráðherra Tyrklands og leiðtoga hinna hógværu íslamista í Réttlætis- og þróunarflokknum sem fara með völd þar í landi. Fátt ku þykja meiri móðgun í íslam en að kasta skó í mann. Meðan skórinn flaug gerði Kúrdinn hróp að Erdoĝan, æpti „Kúrdistan lengi lifi“ og kallaði Tyrkjann glæpamann og morðingja. En ekki var andófsmaðurinn hittinn því að skórinn fór hvergi nærri forsætisráðherranum. Og vart var skotvopnið - skóvopnið - lent þegar öryggisverðir og lögregluþjónar höfðu stokkið til og gripið Hokman Jóma. Í ljós kom þá að hann hafði ekki einu sinni dvalarleyfi hér á Spáni; var semsagt pappíralaus innflytjandi.
Þetta var allt óundirbúið, gert í hita andartaksins, hefur El País eftir lögfræðingi Kúrdans. Lögmaðurinn sagði þessu til sannindamerkis að þegar hann tók við vörn hans nokkrum klukkustundum eftir handtökuna hafi árásarmaðurinn aðeins verið í öðrum skónum. Í apríl í fyrra fékk lögmaðurinn bréf frá skjólstæðingi sínum. Þar sagði, segir El País: „Ég gat ekki leyft mér að hitta á þennan mann án þess að segja neitt við hann og að hann hyrfi á braut einsog ekkert væri. Hann kom til að taka við verðlaunum sem ég skil ekki fyrir hvað hann fékk. Stjórnin í Tyrklandi hefur hafið fimm stríð gegn þjóð minni og hefur drepið þúsundir kvenna, barna og gamalmenna. Það eina sem vakti fyrir mér var að vekja athygli svo að fólk vissi um fjölmennustu ríkislausu þjóð heims: þ.e. Kúrda.“
Mál skóvarparans hefur farið í gegnum tvö dómstig. Og báðir dómstólar hafa dæmt á sama veg en um leið viðurkennt að þriggja ára fangelsisvist sé alltof þung refsing fyrir þetta afbrot. En þeir eru líka sammála um að eiga ekki annars úrkosti vegna ákvæða spænskra hegningarlaga. Kúrdanum var gefið að sök að hafa framið brot gegn alþjóðasamfélaginu með tilræði við valdsmann. Lögmaður hans segir vandann snúast um að hann hafi verið dæmdur eftir ákvæðum sem eigi við þegar kastað er múrsteini að tignarmanni eða rýtingi, í stuttu máli einhverju sem geti sært og skaddað. En lögin geri ekki ráð fyrir að vopnið sé réttur og sléttur skór. Blaðið segir lögmanninn ekki þreytast á að bera þetta mál saman við atvikið þegar íraski blaðamaðurinn Muntazer al Zaidi kastaði skóm að Bush Bandaríkjaforseta 2008 og kallaði hann hund. Blaðamaðurinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi en látinn laus eftir 9 mánuði.
Héraðsdómstóllinn í Sevilla komst að sömu niðurstöðu og fyrra dómstig þegar hann endurskoðaði dóminn eftir áfrýjun en ráðlagði líka framtíðarlausnir til bæta fyrir hina yfirdrifnu refsingu. Lögmaðurinn hefur sótt um sakaruppgjöf en spænsk réttvísi er ekki þekkt fyrir að vera sérlega viðbragðsfljót. Í síðasta svari dómsmálaráðuneytisins frá í desember sagði að enn væri beðið tilskilinna skýrslna frá dómstólnum er dæmt hefði.
Hokman Jóma sér því framá að fagna 29 ára afmæli sínu í maí bakvið lás og slá. Hann kom hingað til Spánar um Marokkó árið 2005 og settist að í Sevilla þar sem fyrir var Ahmed Íbrahím, sveitungi hans, en þeir eru báðir frá litlu þorpi í norðaustanverðu Sýrlandi. El País hefur eftir þeim síðarnefnda að fjölskylda fangans, foreldrar og níu systkin, séu fátækt bændafólk sem eigi nokkrar skepnur og fjögur tré.
Ahmed Íbrahím og lögfræðingurinn telja að spænska lögreglan hafi í upphafi haldið skókastarann vera í skipulögðum hópi sem vildi í raun gera Recep Tayyip Erdoĝan mein. Jafnvel að Ahmed hefði skipað honum fyrir því að hann talaði við hann 10 mínútum áður en hann lét til skarar skríða. Lögregla yfirheyrði Ahmed Íbrahím vegna þessa. Og lögregla í Sýrlandi yfirheyrði föður Hokmans Jóma og rannsakaði hagi hans, segir El País. Af öllum þessum sökum hafi sakborningurinn sárbænt spænska dómarann að hafna beiðni saksóknara um að honum yrði vísað úr landi. Brottvísun var helsta áhyggjuefni hans því að Hokman Jóma hefði óttast að verða pyntaður til dauðs yrði hann sendur aftur til Sýrlands. Hann hefði jafnvel hótað að fyrirfara sér frekar en að verða sendur úr landi.
Morgunútvarpinu, 20. febrúar 2012.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
