Rajoy vill hjálp Seðlabanka Evrópu

Spánn er í miðri hringiðu evrukreppunnar og aðgerðir stjórnvalda virðast engin áhrif hafa á fjármálamarkaði. Þeir halda áfram að hafa litla trú á spænskum efnahag svo að lántökukostnaður landsins er nær óbærilegur. Forsætisráðherra Spánar forðast að tala um að biðja um björgunaraðgerðir og lánalínur en þrýstir á að Seðlabanki Evrópu hlaupi undir bagga og kaupi spænsk ríkisskuldabréf.
Lesa meira

Ítalía í óvissu

Það er ekki aðeins mannskæðir jarðskjálftar og sprengjutilræði sem ganga yfir Ítalíu þessa dagana heldur annarskonar hræringar og hringiða í stjórnmálum landsins.
Lesa meira

Spænskir bankar í kröggum

Spánn líkist Írlandi æ meir með hverjum deginum sem líður. Ofurbóla varð írskum bönkum að falli svo að landið varð að leita á dýrar náðir Evrópusambandsins. Ofurþanin byggingabóla sprakk með ljótum hvelli á Spáni fyrir nokkrum árum og er rótin undir vanda landsins og banka þess núna. Spænskir bankar og erfileikar þeirra hafa verið ofarlega á baugi uppá síðkastið.
Lesa meira

Ókátt í höllinni á brúðkaupsafmæli

Konungshjónin á Spáni eiga gullbrúðkaupsafmæli í dag, 14. maí. En þau hafa ákveðið að halda ekki uppá það enda hefur spænska krúnan vart verið í meiri klípu en nú síðan Jóhann Karl varð konungur fyrir rúmum 36 árum.
Lesa meira

Geislahjúpar afhjúpaðir

Sumt fólk segist skynja áru annars fólks og slíkt oft sett í samband við skyggnigáfu og dulræna hæfileika og jafnvel heilagleika. Stundum er sagt að því fylgi lækningamáttur. Vísindamenn á Spáni telja sig hinsvegar hafa fundið skýringu á fyrirbrigðinu og rekja til þess sem nefnist samskynjun.
Lesa meira

Vörumerkið Spánn á niðurleið

Spánverjum gengur æ verr að selja vörumerkið Spán í kreppunni. Það er á greinilegri niðurleið og traust fjárfesta á landinu fer minnkandi, áhugi þeirra á að fjárfesta þar fjarar út.
Lesa meira

Tímabankar

Víða um lönd eru til svonefndir tímabankar. Í þeim eru peningar ekki gjaldgeng mynt heldur tími fólks og geta þess til að gera eitthvað. Þeim hefur vaxið ásmegin víða undanfarið í kreppunni, t.d. á Spáni þar sem atvinnuleysi er mest í Evrópusambandinu.
Lesa meira

Hættan við að lifa of lengi

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur nýlega bent á þá peningalegu áhættu sem felst í því að mannfólkið skuli hafa tekið uppá því að lifa æ lengur, lengur en búist var við, jafnvel von úr viti. AGS birti nýlega skýrslu um fjármálajafnvægi heimsbyggðarinnar en þar var að finna kafla sem bar þann ógnvænlega titil „Fjárhagsleg áhrif langlífisáhættunnar“.
Lesa meira

Fleiri Ítalir stytta sér aldur í kreppunni

Þeim Ítölum sem svipta sig lífi vegna efnahagsþrenginga fer fjölgandi. Að meðaltali stytta tveir Ítalir sé aldur á dag af þessum sökum, segja fjölmiðlar. Sjálfsvígum hefur fjölgjað í þeim evrulöndum sem verst hafa orðið úti í kreppunni en þó ekki í öllum.
Lesa meira

Argentína og Spánn deila um þjóðnýtt olíufélag

Stjórnvöld í Argentínu og Spáni eru komin í hár saman vegna þess að argentínska stjórnin ákvað í vikunni leið að taka olíufélagið YPF eignarnámi að 51 prósenti hlutafjár. Einnig tekur ríkið gasfélag þess til sín en hvorttveggja fyrirtækin voru í meirihlutaeigu spænska olíufélagsins Repsol.
Lesa meira