Santorum á uppleið

Öldungadeildarþingmaðurinn fyrrverandi Rick Santorum sigraði með nokkrum yfirburðum í forkosningum Repúblikanaflokksins sem fóru fram í þremur ríkjum aðfaranótt 8. febrúar: Minnesota, Missouri og Colorado. Santorum er einn fjögurra sem sækjast eftir að verða frambjóðandi flokksins í forsetakosningum í nóvember. Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, þykir enn sigurstranglegastur en óvæntur sigur Santorum í þessum þremur ríkjum bendir til þess að kosningabaráttan muni dragast á langinn vegna óánægju íhaldsmanna með Romney. Ron Paul virðist ekki raunhæfur kostur fyrir Repúblikana frekar en fyrri daginn og New Gingrich glímir við drauga úr fortíðinni og ásakanir um kvensemi og framhjáhald.
Á móti samkynhneigð og jafnaðarmennsku
Kastljósið er því fyrst og fremst á Rick Santorum og Mitt Romney þessa stundina. Romney var ríkisstjóri í ríki sem þykir almennt vinstrisinnað og hann hefur verið sakaður um að vera ekki sannur íhaldsmaður vegna þeirrar stefnu sem hann tók í heilbrigðismálum á þeim tíma. Heilbrigðistryggingakerfi sem Romney innleiddi í Massachusetts þykir sláandi líkt hugmyndum Baracks Obama um niðurgreiðslu ríkisins á heilbrigðiskostnaði en Repúblikanar hafa gagnrýnt forsetan harðlega fyrir þær hugmyndir og sakað hann um sósíalisma.
Þá má ekki gleyma því að Romney er mormóni og kristnir bókstafstrúarmenn innan Repúblikanaflokksins líta á þann trúflokk sem sértrúarsöfnuð sem eigi ekkert skilt við kristna trú.
Romney er engu að síður sá frambjóðandi sem þykir eiga besta möguleila á að sigra Barack Obama í forsetakosningum. Ýmsir áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins hafa spáð því að það reynist kjósendum erfitt að þurfa að halda fyrir nefið á meðan þeir rita nafn Romneys á kjörseðilinn. Aðrir segjast hreinlega neyðast til að kjósa hann þó þeir muni gera það með óbragð í munni; það sem mestu máli skipti sé að losna við sósíalistann Obama.
Santorum er hins vegar mjög vinsæll meðal bókstafstrúarmanna og hinnar svokölluðu teboðshreyfingar. Hann hefur tekið sterka afstöðu gegn samkynhneigð og fóstureyðingum og hlotið gagnrýni mannréttindasamtaka fyrir. Þegar hann var t.d. spurður út íkynferðislega misnotkun kaþólskra presta á ungum drengjum sagði hann að svona gerðu hommar og því væri hann á móti samkynhneigð. Þá hefur hann sagst fylgjandi því að banna samkynhneigð, framhjáhald og getnaðarvarnir með lögum.
Þessar skoðanir eru vinsælar yst á hægri væng Repúblikanaflokksins en eru ekki líklegar til að afla Santorum þeirra vinsælda sem hann þarf til að hafa betur gegn Obama á landsvísu. Það er því áhugavert að hann skuli hafa hlotið 45% atkvæða í forkosningunum í Minnesota en Romney aðeins 17%. Í Missouri sigraði hann Romney með 55% atkvæða gegn aðeins 25%. Í Colorado, þar sem Romney var spáð öruggum sigri, fékk Santorum 40% atkvæða en Romney 35%.
Hugsjónir og raunsæi
Hvað er að gerast? Ætla Repúblikanar virkilega að skipta um skoðun á lokasprettinum og tilnefna hinn ofur-íhaldsama Santorum? Það verður að teljast ólíklegt. Þessar þrjár forkosningar skipta ekki sköpum og á heildina litið stendur Romney mun betur að vígi nú þegar forkosningar hafa farið fram í 8 ríkjum. Hann hefur hlotið meira en eina milljón atkvæða á heildina en Santorum aðeins 380 þúsund. Kosningabarátta Romneys þykir líka betur skipulögð og vitað er að hann er með ákaflega djúpa vasa.
Úrslitin í Minnesota, Missouri og Colorado eru því fyrst og fremst til marks um klofning innan Repúblikanaflokksins. Þeir sem vilja leggja ofuráherslu á íhaldsamar hugsjónir virðast enn ekki tilbúnir að gefast upp en raunsæismenn eru farnir að hallast að því að allt sé betra en Obama. Romney þarf því ekki að hafa miklar áhyggjur í bili en ljóst er að Santorum mun búa að þeim stuðningi sem hann hefur hlotið til margra ára. Þó hann hljóti ekki tilnefningu flokksins að þessu sinni þykir mörgum hann hafa sannað sig sem raunhæfan valkost í framtíðinni og líklegt er að hann láti til sín taka í stjórnmálum á næstu árum, þá líklega undir merkjum teboðshreyfingarinnar og þeirra sem vilja færa miðju Repúblikanaflokksins enn lengra til hægri.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
