Máttur peninganna vestan hafs

Engum dylst að máttur peninganna er mikill í baráttu Repúblikana um að verða forsetaefni flokksins og það sama verður uppi á tengingnum þegar sá frambjóðandi etur kappi við Barack Obama Bandaríkjaforseta.
Fyrirbæri sem upp á ensku heita „Super Pacs eða Super Political Action Comittees“ gegna nú æ mikilvægara hlutverki í kosningabaráttunni – einkum hjá Repúblikönum. Þessi stjórnmálasamtök geta í raun tekið við ótakmörkuðum framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Það er hinsvegar þak á því hversu frambjóðendurnir sjálfir geta tekið við háum upphæðum beint frá einstökum stuðningsmönnum. SuperPacs-stjórnmálasamtökin eru svo gjarnan hliðholl einstökum frambjóðendum og málstað þeirra - eða öllu heldur beita sér einkum í að greiða fyrir auglýsingar þar sem andstæðingar frambjóðandans eru troðnir niður í svaðið.
Í umfjöllun á NPR-útvarpsstöðinni tók Peter Overby fréttamaður dæmi af samtökunum „Restore our Future“ sem styðja Mitt Romney. Þessi „SuperPac“ beindi spjótum sínum að Newt Gingrich helsta keppinauti Romneys með því að kosta birtingu um 7000 auglýsinga á öldum ljósvakans í Flórída. Á síðustu þremur mánuðum ársins 2011 öfluðu þessi ágætu samtök um 18 milljóna dala – jafnvirði um 2,3 milljarða króna.
Stuðningsnefnd Newt Gingrich tók inn 12 milljónir dala yfir sama tímabil – og þar munaði langmest um 10 milljónir dala frá spilavítiskónginum Sheldon Adelson og eiginkonu hans. Adelson þessi er afar ánægður með einarðan stuðning Gingrich við Ísrael og að frambjóðandinn er herskár í garð Írans.
Barack Obama forseti er líka með sína „Super Pac“ en frammistaða hennar er hálf aumingjaleg miðað við Romney að minnsta kosti – einungis 1 milljón dala kom í kassann hjá Obama-stuðningssamtökunum á þessum sama ársfjórðungi – mest af því frá verkalýðsfélögum.
Það þýðir ekki að forsetinn fái ekki aura í kassann – hann aflar þeirra bara á annan hátt. Kosningavél Obama með höfuðstöðvar í Chicago aflaði um 40 milljóna dala frá október og fram til loka desember – jafnvirði meira en fimm milljarða króna. Það er athyglisvert að kosningasjóður Obama fékk einungis um 9 prósent framlaga sinna frá þeim sem gáfu hámarks framlagið 2500 dali – um 43% komu frá stuðningsmenn sem lögðu til 200 dollara eða lægri upphæðir. Það gildir því að margt smátt gerir eitt stórt og sérfræðingar segja að með þessu áframhaldi hafi Obama náð inn um einum milljarði dala þegar kjördagur rennur upp í byrjun nóvember. Forsetinn er líka duglegur að tala á mannamótum þar sem aðgöngumiðinn kostar stundum enga smáaura – gestir eru til dæmis Hollywood-leikarar og þeir peningamenn sem enn styðja Obama. Þeir hafa margir flúið yfir til Repúblikana.
Svo er það kapituli út af fyrir sig að formlega mega frambjóðendur og stuðningsamtök þeirra (Super-Pacs) ekki bera saman bækur sínar og leggja á ráðin um auglýsingaherferðir og fleira. Það er náttúrulega eins og hvert annað grín segja sérfræðingar og margir stjórnmálamenn – sérstaklega meðal Demókrata sem eru skíthræddir við þetta afl sem leyst var læðingi með dómi Hæstaréttar fyrir tveimur árum. Þeir vilja því herða reglur til að koma í veg fyrir hugsanlegt samráð milli frambjóðenda og þessara samtaka. Demókrötum líst heldur á samtök eins og „American Crossroads“ – sem Karl Rove átti þátt í að koma á fót og halaði inn rúma fimmtíu milljónir dala í fyrra. Rove var auðvitað arkitektinn að forsetakjöri George Bush yngri og American Crossroads stefnir að því að afla um 200 milljóna dala í viðbót fram að kjördegi að því er fram kemur í Washington Post – stór hluti þeirra peninga verður notaður til að berja á Barack Obama og sú skothríð er þegar byrjuð. Auðvitað láta Demókratar ekki sitt eftir liggja í þessum neikvæðu auglýsingum og liðsmenn Obama hljóta að hoppa hæð sína í loft upp yfir klaufalegum ummælum Mitt Romneys að undanförnu um hag fátækra og fleira. Frábært hráefni fyrir Obama-mannskapinn til að klippa aðeins til og snyrta svo úr verði „beinskeytt skilaboð.“ Það er í raun enginn vandur að meðulum í þessum sirkus.
Háðfuglinn Stephen Colbert hefur einmitt gert grín að öllu saman með því stofna sína eigin stuðningsnefnd – hún heitir „Americans for a Better Tomorrow, Tomorrow“ og hefur fengið um eina milljón dala í kassann. Colbert fór á kostum í nýlegri heimsókn til heimaríkis síns Suður-Karólína og notar hvert tækifæri í sjónvarpsþætti sínum til að skjóta eitruðum skotum út og suður. Er það nokkur furða að kjósendur klóri sér stundum í kollinum?
Sveinn Helgason, Washington.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
