Leðjuslagur í vesturheimi

Eftir forkosningarnar á Flórída er næsta víst að Mitt Romney verður forsetaframbjóðandi Repúblíkana í ár og etur kappi við Barack Obama í nóvember næstkomandi. Romney sóttist einnig eftir útnefningu flokksins, 2008, þegar John McCain og Sarah Palin lutu í lægra haldi fyrir Obama og Joe Biden. Þá má segja að flokksmenn hafi ekki fallið fyrir Romney, þrátt fyrir að hann hafi safnað í digrari kosningasjóð en nokkur annar frambjóðandi og lagt til viðbótar fé úr eigin vasa. Ýmislegt bendir til þess að sömu sögu sé að segja núna og að vinsældir hans – eða gott gengi í forkosningum – megi fremur rekja til þess að hinir kostirnir í stöðunni séu enn minna spennandi. Romney þarf því að bæta ásýnd sína verulega áður en hin eiginlega kosningabarátta hefst síðar á árinu.
Könnun Pew Research Center sýnir að einungis 46% Repúblíkana eru ánægð með frambjóðendurna en 52% eru lítt hrifin. Önnur könnun, sem Pew vann með Washington Post, bendir til þess að 55% aðspurðra telji Obama forseta skilja vandamál almennings, en einungis 39% telja að Romney geri það. Fréttaskýrendur vestra eru á því að neikvæðar auglýsingar og pólitískur leðjuslagur sé ein meginástæða þess hversu Repúblíkanar eru ósáttir við frambjóðendurna – og óháðir kjósendur, sem hafa undanfarin ár riðið baggamuninn, hafa engan áhuga á frambjóðendunum heldur. Spænskumælandi kjósendur, sem verða sífellt fleiri og mikilvægari, virðast ekki hrifnir.
Þótt að fátt geti komið í veg fyrir að Romney verði frambjóðandi Repúblíkana að lokum er líklegt að hann þurfi að kljást við einhverja mótframbjóðendur enn um hríð, jafnvel fram að „ofurþriðjudeginum“ svokallaða. Þá verða forkosningar í 11 ríkjum, þar af nokkrum stórum og mikilvægum, m.a. Ohio. Ofurþriðjudagurinn er óvenju seint á ferð í þetta sinn, ekki fyrr en þriðja mars. Hörð og óvægin gagnrýni á Romney gæti því staðið allt fram að því og valdið honum ómældum erfiðleikum.
Ófrægingarherferðin í ár er talin dýrari en nokkru sinni fyrr, ekki síst vegna aðkomu pólitískra aðgerðahópa sem kallast „super-PAC“. Þeir tengjast frambjóðendunum óformlegum böndum en eru ekki háðir sömu takmörkunum. Romney og tengdir hópar eru sagðir hafa eytt ríflega fimmtán milljónum dollara á Flórída, en John McCain eyddi einungis 11 miljónum í heild þegar hann sóttist eftir tilnefningunni 2008.
Rándýr leðja mun því að líkindum einkenna kosningabaráttuna enn um sinn. Romney fær bágt fyrir andstöðu við heilbrigðislöggjöf Obamas sem líkist um margt lögum sem Romney fékk samþykkt í Massachusetts þegar hann var þar ríkisstjóri. Trú skiptir Repúblíkana meira máli en flesta aðra, en Romney er mormóni, sem óvíst er að henti í biblíubeltinu. Hann er moldríkur, borgar mjög litla skatta og hefur hlotið bágt fyrir að koma fé fyrir í skattaskjólum. Og þetta er bara það sem andstæðingar í eigin flokki hafa notað gegn honum undanfarið. Annað eins kemur ugglaust frá vinstri þegar harka færist í leikinn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
