Myndatökur í réttarsal

Umræðan um aðgengi fjölmiðla að dómssölum hefur blossað upp á Íslandi vegna réttarhaldsins yfir Geir Haarde í landsdómi. Íslensk lög gera ekki ráð fyrir að hljóðrita eða mynda megi málaferli og hafa dómarar fylgt þeirri reglu eftir af hörku og aldrei nýtt ákvæði sem heimila undantekningar. Þetta á við í landsdómi, héraðsdómi og hæstarétti. Þó er þorri mála fyrir íslenskum dómstólum rekinn fyrir opnum tjöldum, þ.e.a.s. þinghaldið er opið.
Lesa meira

Af mexíkóskum íslamistum með kjarnavopn

Repúblikanar stóðu fyrir kappræðum í Arizona í gærkvöld en eftir tæpa viku fara fram forkosningar í ríkinu um val á forsetaefni flokksins.
Lesa meira

Forsetinn til vandræða

Christian Wulff, forseti Þýskalands, sagði af sér embætti á föstudagsmorgun. Mánuðum saman þvertók Wulff fyrir að honum væri vart stætt á öðru, í ljósi ásakana um spillingu sem á hann voru bornar. Viðbrögðin gerðu raunar illt verra, því Wulff reyndi að þvinga ritstjóra stærstu dagblaða Þýskalands til að hætta umfjöllun um málið.
Lesa meira

Santorum á uppleið

Öldungadeildarþingmaðurinn fyrrverandi Rick Santorum sigraði með nokkrum yfirburðum í forkosningum Repúblikanaflokksins sem fóru fram í þremur ríkjum aðfaranótt 8. febrúar: Minnesota, Missouri og Colorado. Santorum er einn fjögurra sem sækjast eftir að verða frambjóðandi flokksins í forsetakosningum í nóvember. Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, þykir enn sigurstranglegastur en óvæntur sigur Santorum í þessum þremur ríkjum bendir til þess að kosningabaráttan muni dragast á langinn vegna óánægju íhaldsmanna með Romney. Ron Paul virðist ekki raunhæfur kostur fyrir Repúblikana frekar en fyrri daginn og New Gingrich glímir við drauga úr fortíðinni og ásakanir um kvensemi og framhjáhald.
Lesa meira

Getur friður spillt friðarviðræðum? Upphaf og áhrif Hamas samtakanna

Tvær stærstu hreyfingar Palestínumanna, Fatah og Hamas, hafa samið um frið og myndun nýrrar samsteypustjórnar eftir áratuga átök og borgarastríð. Þetta kunna að hljóma eins og góðar fréttir en svo er ekki að sögn ísraelskra ráðamanna. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur lýst því yfir að palestínska heimastjórnin á Vesturbakkanum verði að velja á milli friðarsamninga við Ísrael eða Hamas.
Lesa meira

Hvað gengur Rússum og Kínverjum til í Sýrlandi?

Í Sýrlandi fara fram hjaðningavíg. Meira en sjö þúsund almennir borgarar hafa verið skotnir til bana af hermönnum eða sprengdir af skriðdrekasveitum síðan mótmæli gegn ríkisstjórninni hófust í fyrra. Sameinuðu þjóðirnar eru hættar að halda bókhald yfir hversu margir hafa látið lífið og erlendir fréttamenn fá ekki aðgang að landinu til að sjá ástandið með eigin augum. Eftirlitsmenn Arababandalagsins gátu heldur ekkert gert til að stöðva blóðbaðið og voru kallaðir heim eftir stutta dvöl í Sýrlandi.
Lesa meira

Máttur peninganna vestan hafs

Engum dylst að máttur peninganna er mikill í baráttu Repúblikana um að verða forsetaefni flokksins og það sama verður uppi á tengingnum þegar sá frambjóðandi etur kappi við Barack Obama Bandaríkjaforseta.
Lesa meira

Leðjuslagur í vesturheimi

Eftir forkosningarnar á Flórída er næsta víst að Mitt Romney verður forsetaframbjóðandi Repúblíkana í ár og etur kappi við Barack Obama í nóvember næstkomandi. Romney sóttist einnig eftir útnefningu flokksins, 2008, þegar John McCain og Sarah Palin lutu í lægra haldi fyrir Obama og Joe Biden. Þá má segja að flokksmenn hafi ekki fallið fyrir Romney, þrátt fyrir að hann hafi safnað í digrari kosningasjóð en nokkur annar frambjóðandi og lagt til viðbótar fé úr eigin vasa. Ýmislegt bendir til þess að sömu sögu sé að segja núna og að vinsældir hans – eða gott gengi í forkosningum – megi fremur rekja til þess að hinir kostirnir í stöðunni séu enn minna spennandi. Romney þarf því að bæta ásýnd sína verulega áður en hin eiginlega kosningabarátta hefst síðar á árinu.
Lesa meira

Óhugsandi úrslit í Rússlandi

Rússar skilja ekki lýðræði, hafa aldrei kynnst lýðræðislegum stjórnarháttum.
Lesa meira

Innflytjendavandi hjá innflytjendaþjóð

Það eru að minnsta kosti 11 milljónir ólöglegra innflytjenda í Bandaríkjunum, þar af eru um 8 milljónir á vinnumarkaðnum hér vestan hafs – eða um 5 prósent af vinnandi fólki.
Lesa meira