Svara fyrir 22. júlí

Norðmenn vilja svör við af hverju flest klúðraðist í aðgerðum lögreglu 22. júlí í sumar? Tveir ráðherrar voru kallaðir inn á teppið í Stórþinginu í dag en fátt var um svör. Fólk verur að bíða næsta sumars áður en hægt er að segja hvort nokkur vanrækti skyldur sínar.

Spurningin er alltaf sú sama: Hefði verið hægt að stöðva Anders Behirng Breivík fyrr? Fyrst þegar hann pantaði efni til sprengjugerðar í vetur frá Pólandi. Tollur og leynilögregla vissu um það. Eða þegar hann kom með sprengju sína til Óslóar og vakti grunsemdir vegfarenda.

Eða þegar hann ók bíl sínum í átt til Úteyjar um 40 mínútna akstur frá Ósló. Það lá fyrir á hvernig bíl hann var.  Og svo síðasta: Hefði lögregla getað komist fyrr til Úteyjar og stöðvað Breivík áður enn hann var búinn að myrða 69 ungmenni.

Í yfirheyrslunni í Stórþinginu í dag bað Knut Storberget dómsmálaráðherra fólk fólki að dæma út frá því sem vitað var meðan Breivík gekk enn laus.  Allt verður að meta í rauntíma og út frá þeim upplýsingum sem lögregla hafði á hverjum tíma og hvort þessar upplýsingar voru ónógar, sagði Storberget. Hann bað fólk líka að bíða niðurstöðu rannsóknarnefndar Stórþingsins næsta sumar. Íslendingar muna sjálfsagt að erfitt var að bíða skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna bankahrunsins. Þetta er saman biðin og þó erfiðari því hér um mannslíf að fjalla og fólk vill fá að vita hvað gerðist í raun og veru.

En það er þessi bið sem varð þess valdandi að ríkisstjórnin ákvað að senda tvo ráðherra í eldinn og láta þá gera grein fyrir stöðu mála í Stórþinginu.  Það er raunverulegur þrýstingur á stjórnina að svara spurningum um atburðina í sumar.  Þau svör komu ekki í dag.  Koma eðli máls samkvæmt aldrei.  Þetta verður alltaf: Hvað ef?

Þau Storberget og Grete Faremo, varnarmálaráðherra, komust klakklaust í gegnum þessa eldraun í dag en það má efast um að þrýstingur á stjórnvöld minnki. Rás atburða er nokkuð ljós og það er nú viðurkennt að það tók 65 mínútur að afvopna Breivík. Það er tíminn sem leið frá því fyrst fréttist af skotum á Úteyju og þar til hann kastaði frá sér vopnunum. Þessar 65 mínútur einkenndust af vandræðagangi og skipulagsleysi.

Raunar alveg í tvo tíma frá því sprengjan sprakk í Ósló. Allur viðbúnaður, allt sem búið var að æfa fór í handaskolun. Enginn vissi hver átti að segja öðrum fyrir verkum fyrr en allt var um garð gegnið.

 Herinn var tilbúinn með þyrlu en sendi hana ekki af stað fyrr en beiðni kom frá lögreglu. Það er í samræmi við reglunar. Beiðnin kom allt of seint.  Eftir yfirheyrsluna í dag er opinberlega búið að staðfesta fréttir fjölmiðla af atburðarásinni. Eftir stendur að enginn getur skýrt af hverju svo hörmulega tókst til. Það er eins og enginn hafi í raun og veru tekið hryjuverkaógnina alvarlega. Menn æfðu viðbrögðin, síðast í sumar, en fór svo heim og sögðu: þetta gerist aldrei hér.  Þyrlusveit lögreglunnar var í fríi og ekki gert ráð fyrir varalausn.

Stjórnarandstaðan var tiltölulega spök í Stórþinginu í dag.  Það er ekki heldur vani hér að rífast opinberlega.  Þingmenn vildu vita hvað hefði verið gert til að bæta viðbúnaðinn og það er verið að vinna í því.  Og það er verið að undirbúa réttarhöld yfir Breivík en einnig þau bíða næsta sumars meðan sálfræðingar og lögregla reyna að átta sig á hvort yfirleitt er hægt að draga þennan mann fyrir dóm.  Dómur verður líka alltaf mjög léttvægur samanborið við afbrotið.

Núna er spurningin hvort fólk sem var á Úteyju og aðstandendur hinn látnu sætta sig við svör ráðherranna.  Magnast nú krafa um að einhver segi af sér vegna mistaka 22. júlí?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka