Bilaður Breivik
Í Ósló er þegar farið að undirbúa réttarhöld yfir Anders Berhing Brievik. Og fyrsta skref er að finna út hvort hann er sakhæfur eða ekki. Færustu réttargeðlæknar landsins skila álíti sínu í dag. Fólk er beið að taka niðurstöðunni með ró því ýmislegt óvænt gæti komið í ljós
Núna á eftir verður fyrsta morgunverkið í héraðsdómi hér í Ósló að taka við skýrslu tveggja geðlækna um sálarástand Anders Berhing Breivík. Og svo eftir hádegið ætlar saksóknari að gera lýðum ljóst hver er niðurstaða Torgeirs Husby og Synne Sörheim um sakhæfi fjöldamorðingjans. Innihaldið er annars leynilegt.
Skýrslan var tilbúin fyrir helgi, mánuði á eftir áætlun, og er víst um
230 síður að lengd. Skýrslan á í heild að vera leynileg eftir að niðurstaðin verður lesin upp núna síðar í dag. Það á ekki að birta hana og því verður ekki ljóst hvaða rök geðlæknarnir hafa fyrir áliti sínu. Það koma eðli máls samkvæmt bara tveir möguleikar til greina:
Að Breivík sé sakhæfur eða ekki sakhæfur.
Enginn veit þó hve lengi tekst að halda skýrslunni frá fjölmiðlum. Hún verður til í nokkrum eintökum og það verður mikil eftrispurn eftir fréttum úr einstökum köflum hennar. Gögn, sem til þessa hefur verið dreift til lögmanna þeirra sem lifðu af, hafa umsvifalaust lekið út og nú má búast við að þessi skýrsla fari líka á Netið - fyrr en síðar.
Það eykur enn á spennuna að vinna við þessa skýrslu hefur tekið mun meiri tíma en ætlað var. Þó eru um að ræða tvo reynda réttargeðlækna, sem áður hafa úrskurðað um sakhæfi í erfiðum málum. Og það hefur ekki alltaf þurft skrifa 230 síður til að gera grein fyrir niðurstöðunni.
Oft er málið einfalt.
Í fyrstu vildi Breivik ekki tala við norska geðlækna og vildi fá að úrskurð japanskra lækna en var neitað um það. Eftir það hefur hann að sögn verið samvinnuþýður og svarað spurningum. Það hefur líka komið fram að geðlæknarnir byrjuðu strax að grafa í bernsku fjöldamorðingjans.
Barnaverndarnefnd hafði áhyggjur af honum þegar 4 ára gömlum en samt hefur líf hans verið tíðindalítið lengi vel. Hann hefur alltaf þótt fremur einrænn og vinafár en samt mjög kurteis og áberandi vel uppalinn. Ef til vill of kurteis og of prúður í framkomu. Þannig er persóna hans ráðgáta fyrir alla.
En fyrir vikið er áhuginn á að fá að kíkja í skýrslu geðlæknanna enn meiri. Eru þar einhverjar skýringar á þessari ráðgátu? Hafa geðlæknarnir fundið út eitthvað sem enginn hefur vitað um og skýrir af hverju hinn kurteisi Breivík breyttist í fjöldamorðingja? Af hverju tók svo langan tíma að rannsaka sálarástand mannsins og af hverju þarf að skrifa 230 síður um það sem virðist augljóst? Maðurinn er snarklikkaður! Þó liggur fyrr að hann framdi ekki ódæði sín í stundarbrjálæði. Allt var vel undirbúið.
Niðurstaðan sjálf skiptir máli. Hér er þó aðeins um ráðgefandi álit að ræða. Það er rétturinn sem að lokum úrskurðar um sakhæfi. Dómarar ganga þó tæplega gegn alveg ótvíræðri niðurstöðu. Sé niðurstaðan hins vegar óljós með mörgum álitamálum hafa dómarar nokkuð frjálsar hendur.
Meðal þeirra sem lifðu hryðjuvek Breiviks af kemur oft fram sú afstaða að hann skuli dæmdur samkvæmt gildandi lögum og að farið verði með mál hans eins og hvert annað morðmál. Í þessu sýni réttarríkið styrk sinn.
Verði Breivík úrskurðaður ósakhæfur verða engin réttarhöld og hann lokaður inni til æviloka án þess að mál hans verði prófað á öllum dómsstigum. Þetta yrði mikil vonbrigði fyrir þá, sem eiga um sárt að binda.
Enginn veit enn hver niðurstaðan verður. Fólk hefur verið beðið um að taka niðurstöðunni með ró hver svo sem hún verður. Það getur ýmislegt óvænt komið í ljós eftir tveir færustu réttargeðlæknar landsins hafa kafað í sálardjúp versta fjöldamorðingja sögunnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
