Hinsegin dýr

Eru til hinsegin dýr? Samkynhneigð í dýraríkinu hefur verið rannsökuð og niðurstaðan er skýr en umdeild. Líffræðingurinn dr. Bruce Bagemihl rannsakaði þetta í mörg ár og komst að þeirri niðurstöðu í bók sinni Biological Exuberance að samkynhneigð væri að finna hjá um það bil 450 dýrategundum. Aðrir fræðimenn hafa nefnt miklu hærri tölu. Niðurstaðan hlýtur því að vera sú að samkynhneigð er ekki lært félagslegt athæfi, sjúkdómur, vansköpun eða synd heldur fullkomlega náttúrulegt og eðlilegt fyrirbæri. Dýrin leika sér með hinum og þessum og velta þessum skilgreiningum ekki jafn mikið fyrir sér og við mennirnir. Maðurinn virðist í raun vera eina dýrategundin sem eitthvað virðist setja sig upp á móti þessu.

En samkynhneigð eða ástaratlot milli tveggja einstaklinga af sama kyni þekkjast sem sagt vel í dýraríkinu. T.d. hjá hinum stórskemmtilegu dvergsimpönsum eða bonoboöpum sem lifa í Kongó en meðal þeirra er um það bil helmingur allra para samkynhneigður samkvæmt rannsóknum Bagemihls. Þeir útkljá líka öll sín deilumál með kynlífi og það eru kvendýrin sem ráða ferðinni í þessu draumaríki apanna þar sem ástin fer fyrir öllu. Höfrungar eru líka ansi liðtækir og gæsir eru líka gjarnar á að velja sér lífsförunaut af sama kyni. Það er þekkt hjá heiðargæsum að steggir bindist ástarböndum og ali jafnvel upp unga með góðum árangri. Fullyrðingum um að samkynhneigð sé ónáttúrulegt athæfi vegna þess að samkynhneigð pör æxlist ekki í náttúrinni hefur verið svarað með þeim rökum hjá dýrafræðingum að það sé þvert á móti mjög æskilegt og gott fyrir dýrategundir að hafa vissan hluta af hópnum samkynhneigðan.

Ef menn eru hinsegin – hvers vegna ekki dýr? Það eru ekki bara atferlis- og dýrafræðingar sem hafa bent á þetta heldur líka bændur, starfsmenn í dýragörðum og annað fólk sem fylgist með atferli dýranna. Gagnrýnendur segja hins vegar að ekki megi rugla saman kynferðislegum athöfnum og öðrum félagslegum athöfnum og tjáskiptum.  Dýrin hafa ekki jafn þróað tungumál og maðurinn en tjá sig þess í stað oft með ansi furðulegum hætti. Það er t.d nokkuð algengt hjá karlöpum að þeir beiti kynferðislegu ofbeldi í stöðubaráttu sinni. Ástaratlot milli dýra af sama kyni eru líka algengari hjá ungum dýrum en eldri dýrum, jafnvel áður en dýrin verða kynþroska sem má útskýra með ýmsum hætti.

En eftir því sem málið er rannsakað betur virðist samkynhneigð vera hinn eðlilegasti hlutur og ekki vera neitt forboðið feimnismál eða þrætuepli neins staðar nema hjá þeirri dýrategund sem gjarnan telur sig æðsta og skynsamasta; manninum. Frægt er t.d hið samkynhneigða gammapar, Dashik og Yahuda sem hefur haft aðsetur sitt í dýragarði í Jerúsalem í Ísrael. Dashik og Yahuda eru karldýr sem hafa fellt hugi saman og meira að segja alið upp afkvæmi. Dýrahaldarar í Jerúsalem tóku eftir því að fuglarnir höfðu búið sér hreiður og voru að byrjaðir að para sig og því var ákveðið að gefa þeim gerviegg í hreiðrið til þess að sjá hvað myndi gerast. Gammarnir voru hinir lukkulegustu með gervieggið sitt og höguðu sér alveg eins og um alvöruegg væri að ræða. Dýrahaldararnir ákváðu í framhaldi að láta fuglana fá alvöru unga í hreiðrið og Dashik og Yahuda hafa komið nokkrum ungum á legg, með góðum árangri m.a. þeim Divu og Adi Gordon sem nú búa í garðinum.

Svona er ástin. Gleðilega hinsegin daga!

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka