Ómótstæðileg tilboð
Það er lítill vandi að eignast flest það sem hugurinn girnist, og gott betur. Að minnsta kosti ef marka má tilboðin sem síma –og netáskrifendum í Danmörku standa til boða.
Hér í Danmörku, eins og víðast hvar, telst það brýn nauðsyn hverjum þeim sem fylgjast vill með í veröldinni að vera tengdur, bæði með síma og net. Það eru líka mörg fyrirtæki sem eru tilbúin að veita þessa þjónustu og berjast hart um kúnnana. Öll bjóða þau að eigin mati ómótstæðileg tilboð þar sem allt er innifalið og til að fá viðskiptavininn tilvonandi til að bíta á agnið er gjarna boðið uppá sérleg vildarkjör í upphafi. Þegar síma-og tölvueigandinn hefur svo valið sér fyrirtæki sem hann vill skipta við og gengið frá öllum tilheyrandi formsatriðum er hægt að byrja að hringja, senda sms og annað það sem tæknin býður uppá, og nota netið. En það er ekki bara hinn lukkulegi áskrifandi sem getur nú notfært sér tæknina. Ekki er fyrr búið að tengja pósthólfin í tölvunni og símanum en tilboðunum byrjar að rigna inn. Það er hreint með ólíkindum hve margir vilja verða vinir hins nýja áskrifanda og ávarpa hann með nafni rétt eins og um sé að ræða ættingja, gamlan skólafélaga eða fyrrverandi vinnufélaga. Og allt það gull og grænu skógar sem lofað er í tölvupóstinum er ekki skorið við nögl. Sá síma-og netáskrifandi sem hér talar yrði ekki uppiskroppa með fermingar eða tækifærisgjafir það sem eftir er ævinnar ef til hans hefðu borist allar þær myndavélar eða farsímar sem honum hafa næstum því fallið í skaut. Hann gæti líka verið árið um kring að frílysta sig í sólarlöndum, eða siglt um höfin á risastóru skemmtiferðaskipi og setið þar áhyggjulaus undir sólhlíf með drykk í glasi, ef hann hefði nú bara þegið allar þær ferðir sem næstum hafa staðið til boða. Ef hann kysi frekar að vera heima þyrfti hann ekki að hafa áhyggjur af matarinnkaupunum, allar þær matarúttektir sem honum hafa næstum staðið til boða myndu duga til að sjá allri fjölskyldunni fyrir mat árið um kring. Ennfremur hafa honum næstum staðið til boða ókeypis tryggingar, óteljandi máltíðir á veitingastöðum, gleraugu sem myndu duga hundrað manns, fótsnyrting, klipping og að sjálfsögðu megrunarkúrar sem lofa að breyta miðaldra ístrubelg í straumlínulagað vöðvatröll á nokkrum vikum. Ekki má gleyma peningunum sem eru næstum við hendina, sá sem dytti í þann lukkupott þyrfti ekki að hafa áhyggjur af skotsilfrinu. Þarna er þó ekki allt talið því reglulega berast tilboð um að athuga hvort íbúðin sé ekki nægilega vel einangruð og bæta þá úr ef þörf er á. Eins og allt annað, auðvitað næstum því.
En eins og alltaf fylgir böggull skammrifi og þess vegna er þetta allt saman bara næstum því.
Til að hreppa allar þessar heimsins lystisemdir, þarf nefnilega að samþykkja eitt og annað. Til dæmis að öll möguleg fyrirtæki megi hringja og senda alls kyns auglýsingadót og í mörgum tilfellum þarf að kaupa einhvers konar áskrift eða að binda sig fjárhagslega með einum eða öðrum hætti. Mörgum sem samþykkja skilmálana, eins og það heitir, gengur hinsvegar ekki vel að binda enda á viðskiptin sem iðulega enda með kostnaðarsömum málaferlum. Þess vegna er kannski skynsamlegast að nota gömlu myndavélina áfram, tala í gamla símann, klippa sjálfur táneglurnar og punga út fyrir utanlandferðinni eins og hingað til.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
