Mary krónprinsessa
Nú eru rúmlega tíu ár síðan danska þjóðin heyrði fyrst minnst á unga ástralska konu, Mary Donaldson. Þá höfðu danskir fjölmiðlar komist á snoðir um samband hennar og Friðriks krónprins og nú fór í gang mikil rannsóknarblaðamennska.
Dönsku blöðin með hið konunglega vikutímarit Billed Bladet í broddi fylkingar kepptust við að upplýsa dönsku þjóðina um æviferil þessarar ungu konu, sem hafði háskólapróf í viðskiptalögfræði og markaðsfræðum og brætt hafði hjarta krónprinsins. Rannsóknarblaðamennirnir komust fljótlega að því að þau Friðrik og Mary höfðu fyrst hist við ofurhversdagslegar aðstæður, nánar tiltekið á barnum “Slip inn” í Sydney sumarið tvöþúsund. Krónprinsinn var þá viðstaddur Olympíuleikana en Mary sem vann hjá þekktu auglýsinga- og kynningarfyrirtæki í Sydney hafði brugðið sér á barinn með vinkonum sínum. Hún neitaði síðar í blaðaviðtölum að hún hefði verið á einhverju sérstöku útkikki þetta kvöld og hún hefði í fyrstu vart trúað því að þessi glaðklakkalegi ungi maður væri danskur prins og hafði spurt hvort hann héti kannski Hamlet? Hvernig sem það nú var tókust þarna kynni með þeim Mary og Friðriki. Samband þeirra fór mjög leynt í fyrstu þrátt fyrir að dönsku blöðin, einkum Billed Bladet og Se og Hör fylgist með hverju fótmáli konungsfjölskyldunnar, ekki síst ríkisarfans, en í nóvember 2001 greindi Billed Bladet frá sambandi Friðriks og Mary. Þau voru síðan gefin saman við hátíðlega athöfn í Dómkirkju Kaupmannahafnar, Vorrar frúar kirkjunni, 14. maí 2004.
Þau Mary og Friðrik eiga fjögur börn og búa í einni af fjórum höllum Amalíuborgar, sú er kennd við Friðrik VIII. Miklar endurbætur og viðgerðir fóru fram á höllinni áður en ríkisarfafjölskyldan flutti inn og að þeim loknum var hún opin almenningi um hríð. Þar voru þá langar biðraðir flesta daga og hálf milljón gesta kom í höllina á þessum tíma.
Margrét Þórhildur hefur ekki farið dult með að hún er ákaflega ánægð með báðar tengdadætur sínar þótt krónprinsessan Mary sé mun meira í sviðsljósinu en Marie sem gift er Jóakim prins.
Í tilefni fertugsafmælisins hefur mikið verið fjallað um Mary í dönskum fjölmiðlum. Almenningur og álitsgjafar spurðir spjörunum úr: hvernig er hjónabandið, hvernig hefur henni gengið að aðlagast hlutverkinu, hvað með klæðnaðinn, er hann tipp topp, hvernig er dönskukunnáttan og svo framvegis og svo framvegis. Svörin eru flest á einn veg: fólki finnst krónprinsessan standa sig prýðilega í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og sinni vel skyldum sínum, en hún vinnur mikið að ýmis konar góðgerða- og velferðarmálum. Hún er vel menntuð og talar góða dönsku, sem Dönum þykir mikilvægt. Fyrstu árin hennar hér í Danmörku var hún áberandi á síðum tískublaðanna, jafnvel talað um hana sem tískudrottningu. Hún hefur markvisst reynt að breyta þeirri ímynd en nokkrir sem um hana hafa skrifað í tengslum við afmælið segja hana helst til slétta og fellda. Einn álitsgjafinn komst þannig að orði að venjulegar konur með eðlilegan vöxt verði miður sín og finnist þær eins og hveitipoki þegar þær stilli sér upp fyrir framan spegilinn og beri sig í huganum saman við krónprinsessuna.
Hvað sem slíkum samanburði líður sýna allar kannanir að Danir eru ánægðir með krónprinsessuna og þótt þeir séu mjög sáttir við krónprinsinn segja þeir að Mary Donaldson sé réttnefndur betri helmingurinn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
