Deilt um Lennon myndir

Fyrir tæpum hálfum mánuði var haldin hér í Kaupmannahöfn sýning á teikningum og málverkum eftir John Lennon, en Lennon var eins og margir vita liðtækur myndlistarmaður. Á þessari sýningu sem haldin var á hóteli á Amager og stóð einungis í þrjá daga voru rúmlega eitt hundrað myndir, stærsti hlutinn teikningar en einnig málverk.

Lennon leitaði oftast ekki langt út fyrir túngarðinn að viðfangsefnunum í myndum sínum, lang flestar eru af honum sjálfum, Yoko og syninum Sean.  Sum verkanna á sýningunni voru prentuð í takmörkuðu upplagi og árituð af Lennon sjálfum en flest númeruð og merkt með stimpli útgáfufyrirtækis Yoko Ono.  Verðið var mismunandi en hljóp á þúsundum dollara.Þótt sýningin væri lítið auglýst var aðsóknin mikil enda á Lennon sér marga aðdáendur og þetta ku vera fyrsta sýning á verkum hans hér í Kaupmannahöfn.

Meðal þeirra sem lögðu leið sína á sýninguna var danskur myndlistarmaður, Jan Mortensen.  Mortensen hafði teikniblokk með sér á sýninguna og dró hana fljótlega upp úr bakpokanum og byrjaði að rissa upp myndir Lennons.  Mortensen segist iðulega gera þetta á sýningum, þannig verði upplifun sín áhrifaríkari.  Á tæpum klukkutíma teiknaði hann  sjö myndir án þess að reyna með nokkrum hætti að leyna því hvað hann væri að gera.  Þegar hann stóð fyrir framan eina teikninguna, sú tilheyrði hinum erótíska hluta sýningarinnar, vatt bandarískur starfsmaður Yoko Ono sér að honum og fékk að skoða myndirnar.  Starfsmaðurinn, Abigail Esman bað Mortensen að afhenda sér teikningarnar, sagði að það væri bannað að taka myndir á sýningunni og sama gilti um teikningar.  Hér giltu bandarísk lög í þessum efnum.  Mortensen sagðist ekki sætta sig við slíka túlkun á ljósmyndabanni, hvergi væri tekið fram að bannað væri að teikna, hann neitaði að afhenda teikniblokkina og ætlaði að fara úr salnum.  Starfsfólk hótelsins sem komið var á vettvang, vissi varla hvernig það átti að bregðast við, ætlaði fyrst að beita svokallaðri borgaralegri handtöku  en kallaði hótelstjórann til og jafnframt lögregluna. Mortensen beið í salnum á meðan.  Hótelstjórinn sagði þegar hann kom á staðinn að hér réði hann og ekki bandarískir starfsmenn Yoko Ono,  Mortensen gæti teiknað eins og hann lysti.  Mortensen hafði hinsvegar fengið nóg og fór, með teikningarnar með sér.  Þessi uppákoma vakti auðvitað athygli hinna fjölmörgu sýningargesta sem fylgdust áhugasamir með. 

Í einu dönsku blaðanna hefur verið fjallað um þetta mál.  Tveir lagaprófessorar sem blaðið leitaði álits hjá segja alveg ljóst að teiknarinn Mortensen hafi verið í fullum rétti að teikna til eigin nota, öðru máli gegni ef hann hefði ætlað sér að selja myndirnar.  Varðandi þau orð starfsmanns Yoko Ono að bandarísk lög giltu á sýningunni sögðu prófessorarnir að slíkt tal væri beinlínis hlægilegt og hreint ekki svaravert.            

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka