Dæmdur frá dómarastarfi

Hinn þekkti spænski rannsóknardómari, Baltasar Garzón, var í gær fundinn sekur um að leyfa ólöglegar hlerarnir á samtölum lögmanna og fangelsaðra skjólstæðinga þeirra. Af þessum sökum dæmdi Hæstiréttur Spánar hann óhæfan til að gegna dómarastöðu næstu 11 árin þó að hann megi starfa áfram sem lögmaður. Tvö önnur mál hafa verið höfðuð gegn honum fyrir hæstarétti.
Lesa meira

Uppreisn og deilur í eyjaparadís í Indlandshafi

Mikil ólga er nú á Maldív-eyjum og hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur forseta landsins, Mohamed Nasheed, sem sagði af sér í fyrradag eða var neyddur til að segja af sér. Þegar það spurðist fjölmenntu stuðningsmenn hans á mótmælafundi og hvað eftir annað hefur slegið í brýnu. Eftirmaður hans er Mohammed Waheed Hassan Manik, fyrrverandi varaforseti.
Lesa meira

Mary krónprinsessa

Nú eru rúmlega tíu ár síðan danska þjóðin heyrði fyrst minnst á unga ástralska konu, Mary Donaldson. Þá höfðu danskir fjölmiðlar komist á snoðir um samband hennar og Friðriks krónprins og nú fór í gang mikil rannsóknarblaðamennska.
Lesa meira

Santorum á uppleið

Öldungadeildarþingmaðurinn fyrrverandi Rick Santorum sigraði með nokkrum yfirburðum í forkosningum Repúblikanaflokksins sem fóru fram í þremur ríkjum aðfaranótt 8. febrúar: Minnesota, Missouri og Colorado. Santorum er einn fjögurra sem sækjast eftir að verða frambjóðandi flokksins í forsetakosningum í nóvember. Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, þykir enn sigurstranglegastur en óvæntur sigur Santorum í þessum þremur ríkjum bendir til þess að kosningabaráttan muni dragast á langinn vegna óánægju íhaldsmanna með Romney. Ron Paul virðist ekki raunhæfur kostur fyrir Repúblikana frekar en fyrri daginn og New Gingrich glímir við drauga úr fortíðinni og ásakanir um kvensemi og framhjáhald.
Lesa meira

MP-banka-fjárfestirinn og uppljóstrarinn

Starfsmaður Kaupþings í Lúxemborg lenti upp á kant við bankann rétt fyrir hrun vegna athugasemda um stöðu bankans. Nýju eigendurnir, sem einnig eiga í MP banka, eru ekki á að láta hann sleppa og hafa dregið starfsmanninn fyrir dóm. Fyrir hrun Kaupþings í Lúxemborg voru ýmsir erlendu starfsmennirnir mjög áhyggjufullir yfir stöðu bankans. Einn þeirra hafði samband við einn yfirmann Kaupþings á Íslandi en hlaut litlar þakkir fyrir ábendingarnar. Starfsmaðurinn benti líka fjármálaeftirlitinu í Lúxemborg á nokkur atriði. Hann hikaði við að segja upp en þegar hann gerði það var bankinn um það bil að fara í þrot. Þó David Rowland keypti bankann ekki fyrr en sumarið 2009 hefur hann samt séð ástæðu til að draga þennan starfsmann fyrir dóm. David Rowland er eins og kunnugt er stór hluthafi í MP banka.
Lesa meira

Aflandskrónur og gjaldeyrisbraskið

Seðlabankinn er að reyna að koma skikki á viðskipti með aflandskrónur en á sama tíma er verið að bjóða erlendum fjárfestum upp á aflandskrónufjárfestingar þar sem ekki er ljóst hvaðan krónurnar koma. Það voru ýmis göt á reglum um gjaldeyrishöftin framan af en það er fyrir löngu búið að stoppa í þau göt. Það er velta í aflandskrónum og Spegillinn veit um dæmi þar sem verið er að bjóða erlendum fjárfestum að fjárfesta í aflandskrónum. Það eru ýmsar hliðar á því máli en þar sem Seðlabankinn og íslensk yfirvöld munu eiga síðasta orðið, þegar höftunum verður aflétt, geta þetta ekki verið annað en áhættusöm viðskipti. En auðvitað eru til fjárfestar sem standast einmitt ekki slíkar fjárfestingar.
Lesa meira

Bhopal og Ólympíuleikarnir

Hvaða ábyrgð tekur fyrirtæki á sig þegar það kaupir fyrirtæki sem hefur orsakað umhverfisslys? Og hvað með afstöðu forráðamanna ólympíuleikanna til styrks frá svona fyrirtæki? Málið um Dow Chemicals og ólympíuframlag þess vekja viðbrögð í Englandi. Árið 1984 kom upp gasleki við Union Carbide í Bhopal á Indlandi þar sem skordýraeitur var framleitt. Eiturgas lagði yfir svæðið í kring. Nákvæmar tölur um mannslát í nágrenninu eru umdeildar, enn margt á huldu um slysið en það er talið að í kjölfar slyssins hafi 20-25 þúsund manns látið lífið. Stórfyrirtækið Dow Chemicals keypti Union Carbide 1999 og tók þar með yfir skuldbindingar vegna slyssins. Dow Chemicals hefur gert viðamikla samninga við bresku ólympíunefndina vegna leikanna í Lundúnum í sumar og fjármagnar meðal annars stórt plasthengi á aðalleikvanginum. Ýmsir álíta aðkomu Dow varpa skugga á leikana og meðlimur í undirnefnd leikanna hefur nú sagt af sér vegna málsins. Dow og ólympíunefndin halda þó fast í sitt samstarf.
Lesa meira

Lágverðslíf og lággjaldatilvera

Á Spáni horfa æ fleiri orðið í eyrinn í kreppunni og spara við sig í öllu sem hægt er að spara. Lífið og tilveran semsagt að breytast í lágverðslíf og lággjaldatilveru, segir Kristinn R. Ólafsson í vikulegu Spánarspjalli sínu.
Lesa meira

Getur friður spillt friðarviðræðum? Upphaf og áhrif Hamas samtakanna

Tvær stærstu hreyfingar Palestínumanna, Fatah og Hamas, hafa samið um frið og myndun nýrrar samsteypustjórnar eftir áratuga átök og borgarastríð. Þetta kunna að hljóma eins og góðar fréttir en svo er ekki að sögn ísraelskra ráðamanna. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur lýst því yfir að palestínska heimastjórnin á Vesturbakkanum verði að velja á milli friðarsamninga við Ísrael eða Hamas.
Lesa meira

Hvað gengur Rússum og Kínverjum til í Sýrlandi?

Í Sýrlandi fara fram hjaðningavíg. Meira en sjö þúsund almennir borgarar hafa verið skotnir til bana af hermönnum eða sprengdir af skriðdrekasveitum síðan mótmæli gegn ríkisstjórninni hófust í fyrra. Sameinuðu þjóðirnar eru hættar að halda bókhald yfir hversu margir hafa látið lífið og erlendir fréttamenn fá ekki aðgang að landinu til að sjá ástandið með eigin augum. Eftirlitsmenn Arababandalagsins gátu heldur ekkert gert til að stöðva blóðbaðið og voru kallaðir heim eftir stutta dvöl í Sýrlandi.
Lesa meira