Vinir Sjonna lagðir af stað

Benedikt Brynleifsson, trommari, hress fyrir brottför.

Íslensku Evróvisionfararnir lögðu af stað til Þýskalands í bítið. Aðalkeppnin fer fram í Düsseldorf eftir hálfan mánuð.

Vinir Sjonna, ásamt hinum í Evróvision-hópnum, hittust í útvarpshúsinu klukkan fjögur í nótt. Sumir voru að koma beint úr vinnunni, þeirra á meðal trommarinn Benedikt Brynjólfsson sem var að spila á balli. „Ballið var bara stöðvað og sagt: Hér þarf trommuleikarinn að fara í rútu sem bíður hans. Hann þarf að fara út á völl og keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision,“ sagði Benedikt.

Hópurinn er nú nýlentur ytra og stemningin í hópnum mun vera góð. Eftir að menn hafa komið sér fyrir verður fyrsta æfing og síðan ræða íslensku keppendurnir við blaðamenn.

Þórunn Clausen, textahöfundur og leikstjóri, segir að þau geti ekki beðið eftir að komast á æfingu á sviði í Espirit höllinni í Düsseldorf.

Íslenska lagið, sem keppir í fyrri undanriðli 10. Maí, verður númer 14 í röðinni af 19 lögum. Tíu komast í aðalkeppnina eftir 13 daga. Alls keppa 43 þjóðir í Eurovision í ár.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku