Yfirlýsing ETA ekki fullnægjandi

Zapatero forsætisráðherra Spánar.

Spænska stjórnin lýsti því yfir í gærkvöld að ETA, samtök baskneskra aðskilnaðarsinna, þyrftu að gera meira en að lýsa yfir vopnahléi og hvatti samtökin til að snúa baki við ofbeldi í eitt skipti fyrir öll.

ETA lýsti yfir vopnahléi í gær, en ekki er ljóst hvort það er varanlegt eða einungis tímabundið. Samtökin hafa tvívegis áður lýst yfir vopnahléi. ETA hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár.

Fylgi við samtökin hefur dvínað og lögregla á Spáni og í Frakklandi hefur handtekið fjölda forystumanna samtakanna. Yfir 60 grunaðir liðsmenn ETA hafa verið handteknir á þessu ári. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka