Bandarískir hermenn kallaðir til
Bandarískir hermenn voru kallaðir til þegar ráðist var á herstöð íraska hersins í Bagdað í gær. Talið er að árásarmennirnir hafi verið sex, allir með sprengjur innan klæða og vopnaðir rifflum. Árásarmenninir komust inn í herstöðina með því að sprengja sendibíl hlaðinn sprengiefni við hliðið.
Að minnsta kosti 12 létu lífið og hátt í 40 særðust í bardaganum sem braust út en allir árásarmennirnir sprengdu sig að lokum. Bandarískir hermenn komu þeim írösku til aðstoðar og bandarískar herflugvélar sveimuðu yfir herstöðinni. Bandaríska herliðið í Írak hætti beinum hernaðaraðgerðum um mánaðamótin en um 50.000 manna herlið er enn í landinu írösku stjórninni og íraska hernum til halds og trausts. Bandarísku hermenninrir mega aðeins taka þátt í aðgerðum að beiðni íraskra stjórnvalda.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







