Kjarnorkan fær lengri frest
Fyrst birt: 06.09.2010 04:43 GMT, Síðast uppfært: 06.09.2010 04:43 GMT

Þýsku stjórnarflokkarnir hafa komist að samkomulagi um að nýta 17 kjarnorkuver landsins lengur en áður hafði verið ákveðið. Norbert Röttgen, umhverfisráðherra, greindi frá þessu í nótt eftir 12 klukkustunda fund helstu ráðamanna flokkanna.
Stjórn Sósíaldemókrata og Græningja ákvað á sínum tíma að loka síðasta kjarnorkuverinu árið 2021. Samkvæmt samkomnulaginu nú verða elstu kjarnorkuverin í notkun átta árum lengur en þau sem eru frá 9. áratugnum eða yngri má nota 14 árum lengur. Stjórnarflokkarnir komu sér einnig saman um að fyrirtækin sem reka kjarnorkuverin greiði sérstakan skatt á kjarnorkueldsneyti sem nemur um 350 miljörðum króna á ári næstu sex árin.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







