Hörmungar í Gvatemala
Fyrst birt: 05.09.2010 21:33 GMT, Síðast uppfært: 05.09.2010 21:33 GMT

Að minnsta kosti 40 er saknað eftir að aurskriða féll á þjóðvegi í Gvatemala í dag.
Um eitt hundrað björgunarmenn voru þar að grafa upp rútu sem hafði orðið undir aurskriðu þegar önnur féll á þá. Annars staðar í Gvatemala hafa að minnsta kosti 36 farist í aurskriðum og flóðum undanfarinn sólarhring en þar hefur verið úrhelli síðustu daga. Um 12 þúsund manns hafa orðið að flýja heimili sín.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







