Morðvopnið enn ófundið

Menn á vegum rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fundu í gær föt og annað slíkt sem tengist rannsókn þeirra á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni. Björgunarsveitarmenn gengu fjörur í Hafnarfirði í gær og menn frá sérsveit ríkislögreglustjóra köfuðu í smábátahöfninni í leit að gögnum tengdum rannsókninni.

Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem játað hefur að hafa ráðið Hannesi bana, sagði við yfirheyrslur hjá lögreglu að hann hefði fleygt morðvopninu og öðrum sönnunargögnum í Hafnarfjarðarhöfn. Morðvopnið hefur enn ekki fundist en leit verður haldið áfram í dag. Gunnar Rúnar situr í einangrun á Litla-Hrauni en hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald þann 27. ágúst síðast liðinn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka