Vill ekki hætta ESB-aðildarviðræðum

Ögmundur Jónasson, samgöngu-, dómsmála- og mannréttindaráðherra, ætlar ekki að greiða atkvæði með þingsályktunartillögu um að draga til baka umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þrátt fyrir það segist Ögmundur andvígari aðild að ESB en nokkru sinni fyrr, en hann var gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils í dag.
Þar var hann spurður hvort hann myndi greiða atkvæði með eða á móti þingsályktunartillögu um að hætta við aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Hann svaraði á þá leið, að hann myndi gera hið sama og vorið 2009, en þá samþykkti hann aðildarbeiðnina við Evrópusambandið. Ögmundur kvaðst hins vegar sammála Jóni Bjarnasyni, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, um að viðræðuferlið hefði þróast yfir í aðlögunarferli. Því væri hann andvígur. Hann hafi viljað aðildarviðræður og að þjóðin gæti að þeim loknum greitt atkvæði með eða á móti. Þrátt fyrir þetta segist Ögmundur á engan hátt hlynntari aðild en áður, hann sé raunar meira en efins og andvígari aðild að Evrópusambandinu en hann hafi verið áður.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







