Tímafrekt að skoða ECA

Ögmundur Jónasson, nýr samgönguráðherra, segir það geta tekið þónokkurn tíma að ákveða hvort leyfi verði veitt til skrásetningar á herþotuflota hollenska fyrirtækisins ECA hér á landi. Hann segir að komast þurfi að því hvers konar fyrirtæki ECA er og á hvaða grundvelli það starfar.
Mikill úlfaþytur varð fyrir helgina þegar fregnaðist að síðasta embættisverk Kristjáns Möller fráfarandi samgönguráðherra hefði verið að senda Flugmálastjórn bréf um að hefja undirbúning að starfsemi flugflotans suður í Keflavík. Í framhaldinu fullyrti ECA á heimasíðu sinni að íslensk stjórnvöld hefðu veitt fyrirtækinu starfsleyfi hér á landi. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra sögðu ráðherrann fráfarandi hafa hlaupið á sig en Kristján sagði forystumenn ríkisstjórnarinnar lesa of mikið í embættisfærslu sína.
Ögmundur segir málið blöndu af misskilningi og bráðræði. Ekki hafi verið tímabært að ECA setti inn á heimasíðu sína tilkynningu þess efnis, að málið væri klappað og klárt, því svo sé ekki. Verið sé að skoða málið frá tveimur hliðum: annars vegar hvort það samræmist utanríkisstefnu Íslands að fyrirtækið hafi bækisstöð hér, en utanríkisstefnan eigi að vera friðsamleg. Hins vegar þurfi að vita deili á fyrirtækinu til að átta sig á því hvað það ætli sér að gera hér á landi. Það viti menn ekki nægilega vel.
Fram hefur komið að 150 til 200 störf geti skapast komi herþotufyrirtækið hingað, en Ögmundur telur rétt að taka hliðsjón af fleiru. Þegar talað sé um atvinnuhagsmuni, þá tengist þeir líka afkomu ECA, þar sem flugmálaheimurinn fylgist grannt með því sem sé að gerast og þar eigi Íslendingar líka hagsmuna að gæta. Allt verði þetta skoðað áður en ákvörðun verður tekin.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







