Krónan ekki burðug í bankauppgjör

Endurheimtur eigna Landsbankans upp í Icesave-skuldina, væru talsvert meiri, þyrfti ekki að taka tillit til gengisþróunar íslensku krónunnar. Lögmaður í slitastjórn bankans segir að krónan sé ekki nógu burðugur gjaldmiðill í uppgjör stóru bankanna, vegna þeirra fjárhæða sem um er að ræða.
Slitastjórn Landsbankans kynnti nýlega stöðuna á eignasafni bankans, og verðmæti þess miðað við forgangskröfur - vegna icesave og annarra innlána. Í tölum skilanefndar kemur fram að á bilinu frá marslokum og fram í júníloka, jókst verðmæti eignasafnsins um 64 milljarða króna, en vegna styrkingar á gengi krónunnar, var þessi aukning færð niður um 47 milljarða. Heildarverðmætið er 1227 milljarðar án gengisáhrifa, 1177 milljarðar þegar þau eru tekin með.
Halldór H. Backman, sem er í slitastjórn Landsbankans, segir að þessar tvær tölur séu birtar til að sýna hversu miklu munar. Það þurfi þó ekki að þýða að byggt verði á lægri tölunni þegar kemur að úthlutun. Þau mál séu í skoðun. Halldór segir þó að gengisflöktið skapi óvissu sem gott væri að vera án.
Uppgjörið verður flókið - en í meginatriðum verður miðað við gengið eins og það var í apríl í fyrra. Breytingar á því geta hins vegar haft mjög mikil áhrif á endanlegt uppgjör og útgreiðslu krafna. Halldór segir einfaldlega að íslenska krónan henti ekki í uppgjör af þessu tagi. Hún sé það lítil og óburðug, að hún eigi erfitt með að vera miðpunkturinn í slitum á búum stóru bankanna - til þess séu fjárhæðirnar einfaldlega of háar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







