
Sóley segir líklega margar skýringar á þessum útstrikunum. Hún sagði að umfjöllun í bloggheimum og á netinu um sig væri ein ástæða þessa, dregin hefði verið upp sú mynd af henni að hún væri öfgafullur femínisti.
Sóley Tómasdóttir var gestur Morgunútvarps Rásar 2 mánudaginn 7. júní. Hún segist vera að kanna réttarstöðu sína vegna ummæla sem voru látin falla um hana í kosningabaráttunni. 8,4 % kjósenda Vinstri grænna strikuðu yfir eða færðu Sóleyju til á listanum.
Vegna réttindamála eru upptökur af erlendu sjónvarpsefni á ruv.is aðeins aðgengilegar notendum á Íslandi. Nánar á ruv.is/hjalp
Tilkynna um bilaða upptöku