Skriðdreki bætist við stríðsminjar
Fyrst birt: 20.03.2010 19:40 GMT, Síðast uppfært: 20.03.2010 20:06 GMT

Flug- og sögusetur Reykjaness geymir marga muni sem notaðir voru hér á landi í stríðinu.
Maður nokkur í Kópavogi, Hinrik Steinsson, hefur í tæpa tvo áratugi sankað að sér minjum úr seinna stríði - nýjasti gripurinn er nokkuð sérstætt farartæki. Það er bandarískur skriðdreki sem nýverið var fluttur til landsins, samskonar og þeir skriðdrekar sem notaðir voru hér á landi á stríðsárunum. Hinrik er einn af stofnendum Flug- og söguseturs Reykjaness sem hefur að geyma fjölmarga muni sem voru notaðir hér á landi í stríðinu. Safnið hefur ekki fengið húsnæði, en Hinrik vonast til að Reykjanesbær bæti þar úr.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







