Auglýst eftir starfsmönnum í Hörpu
Fyrst birt: 20.03.2010 15:50 GMT, Síðast uppfært: 20.03.2010 16:00 GMT

Tónlistarhúsið Harpa verður opnað á næsta ári.
Auglýst er efir tveimur tæknistjórum tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu í Reykjavík. Rekstrarfélagið Ago ehf., sem sjá á um rekstur hússins, auglýsir eftir yfirmanni ljósadeildar og yfirmanni hljóðvistar í húsinu.
Yfirmaður ljósadeildar sér um ljósin í sölum hússin og skipuleggur vinnu annarra tæknimanna í ljósadeild. Yfirmaður hljóðvistar sér um hljóðstjórn, er yfirmaður innanhússkerfa og skipuleggur vinnu hljóðmanna. Báðir tæknistjórar koma til með að vinna með tónleika-, ráðstefnuhöldurum og öðrum sem standa fyrir viðburðum í Hörpu. Umsóknarfrestur fyrir bæði störfin er til 6. apríl en í auglýsingunum kemur fram að þessir starfsmenn þyrftu að hefja störf sem allra fyrst.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







