Winslet mætir ekki á frumsýningu

Kate Winslet. Leikkonan er sögumaður í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Sólskinsdrengnum.
Breska leikkonan Kate Winslet verður ekki viðstödd frumsýningu íslensku heimildarmyndarinnar Sólskinsdregurinn í New York á mánudaginn að því er fram kemur á fréttavef breska slúðurritsins OK. Þar segir að Winslet, sem er sögðumaðurinn í alþjóðaútgáfu myndarinnar, hafi látið taka sig af gestalistanum. Það geri hún af persónulegum ástæðum, en tilkynnt var fyrir helgi að Winslet og eiginmaður hennar, breski kvikmyndaleikstjórinn Sam Mendes, væru að skilja.
Sólskinsdrengurinn, eftir Friðrik Þór Friðriksson, segir frá Margréti, móður drengsins Kela, og ferð þeirra til Bandaríkjanna í leit að meðferðarúrræðum fyrir soninn, sem er með hæsta stig einhverfu. Bandaríska sjónvarpsfyrirtækið HBO hefur keypt dreifingarrétt á myndinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







