Illmenni á svið
Fyrst birt: 19.03.2010 22:36 GMT, Síðast uppfært: 19.03.2010 22:39 GMT

Leikrit um galdramanninn Svein skotta Björnsson var frumsýnt á Ísafirði í gær. Lítið hefur farið fyrir honum frá því hann var hengdur fyrir rúmum 350 árum.
Síðustu dagar Sveins skotta er nýtt leikverk eftir Benóný Ægisson og það er sett upp í samvinnu Kómedíuleikhússins og Lýðveldisleikhússins.
Efniviður leikritsins er sóttur í söguna og í slíkum tilfellum er oft verið að segja rómantískar hetjusögur en það á varla við um sögu Sveins Skotta.
Verkið er kolsvört kómedía þar sem dans og tónlist er notuð til jafns við leiklistina. Þessi uppsetning hefur líka þá sérstöðu að leikhópurinn er tvískiptur. Helmingurinn býr í Reykjavík og hinn helmingurinn vestur á Ísafirði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







