Amanpour færir sig yfir til ABC

Christiane Amanpour, einn alþekktasti fréttamaður og fréttaskýrandi CNN sjónvarpsstöðvarinnar, hefur ákveðið vistaskipti. Hún færir sig yfir til bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC og hefur störf þar í ágúst.

Amanpour á að stýra vikulegum umræðuþætti ABC um stjórnmál. Þátturinn sem nefnist "This Week" er sendur út á sunnudögum. Auk þess vinnur Amanpour í öðrum fréttaþáttum ABC.

Amanpour var fyrst heimsþekkt í fyrra Íraksstríðinu 1991. Hún hefur síðan verið á vettvangi helstu átaka í heiminum og tekið viðtöl við fjölda leiðtoga um heim allan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka