Handklæði og sápa nýir minjagripir

Verðlaunatillaga um minjagrip Reykjavíkur.
Sápa og handklæði sem minna á heitu pottana í Laugardal í Reykjavík sigruðu í samkeppni sem Hönnunarmiðstöð og Höfuðborgarstofa efndu til um nýjan minjagrip til að selja í Reykjavík. Tilkynnt var um úrslitin í dag.
Það voru vöruhönnuðirnir Friðgerður Guðmundsdóttir og Kristin Birna Bjarnadóttir sem áttu sigurtillöguna. Þær hljóta 600 þúsund krónur í verðlaunafé og þar að auki kaupir Reykjavíkurborg af þeim 200 stykki til að gefa mektargestum sem koma til borgarinnar.
Áformað er að sápan og handklæðið verði komin í sölu í sumar. Sápan er blá á litin og eins og heitur pottur í laginu. Í miðjunni er sápan glær og minnir á vatnið í pottinum. Handklæðið er nokkurn veginn hringlaga og er eins og mynd af heitu pottunum í Laugardal. Það er þannig í laginu að hægt verður að sveipa því um sig og nota sem flík eða skikkju.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







