Gauragangur frumsýndur í kvöld

Gauragangur

Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld. Kvikmynd eftir sögunni er í bígerð. ZikZak framleiðir og er áætlað að tökur hefjist í byrjun sumars.

Skáldsagan Gauragangur kom út árið 1988 og var fyrst sett á svið í Þjóðleikhúsinu fyrir 17 árum. Þar segir frá Ormi Óðinssyni, unglingspilti sem tekst á við fjölskylduna, skólann og ástina. Ólafur Haukur var gestur Morgunútvarps Rásar 2 í morgun.  Hann segir að svo virðist sem sagan og söguhetjurnar eigi jafn mikið erindi við ungmenni í dag eins og fyrir tuttugu árum.

Hann hafi í vetur farið í nokkra skóla þar sem verið sé að lesa bókina og þá hafi hann komist að því að krakkarnir hafi náð ágætu sambandi við Orm og aðrar persónur bókarinnar og líti á hann sem einn af sínum og ,,samtímagaur".  

Ólafur Haukur segir leiksýninguna hafa tekið einhverjum breytingum frá því að hún var fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu fyrir tæpum tuttugu árum.  Hún sé styttri , á sviðinu sé nýtt fólk og einnig úti í sal.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka