Sinfónían sextug

Sinfóníuhljómsveit Íslands Sinfó (mynd: iceland.org)

Um 200 manns stíga á svið í Háskólabíói í kvöld, en þá efnir Sinfóníuhljómsveit Íslands til hátíðartónleika, í tilefni af 60 ára afmæli hljómsveitarinnar. Hljómsveitin hélt sína fyrstu tónleika í Austurbæjarbíói 9. mars 1950.

Á tónleikunum í kvöld verður frumflutt tónverk eftir Hafliða Hallgrímsson, sem er staðartónskáld Sinfóníunnar. Einnig verður flutt Upprisusinfónían eftir Gustav Mahler, sem samin er fyrir risavaxna hljómsveit, stóran kór og tvo einsöngvara. 

,,Þetta er bara ólýsanleg stemmning að sitja þarna á sviðinu umkringdur þessum magnaða hljómi," sagði Inga Rós Ingólfsdóttir, sellóleikari í sveitinni. ,,Það hefði nú verið ótrúlega gaman að vera komin í tónlistarhúsið eins og stemmt var að en núna í kvöld er sem sagt, veisla."

Afmælistónleikum Sinfóníunnar verður útvarpað beint á Rás eitt í kvöld, þar sem upphitun fyrir tónleikana hefst klukkan sjö. Tónleikarnir sjálfir hefjast klukkan hálf átta.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka