Skiptar skoðanir um æsku og elli

Skiptar skoðanir eru um það meðal þjóða heimsins hvenær fólk hættir að vera ungt og hvenær það verður gamalt. Meðaltal könnunar European Social Survey, sem náði til 21 þjóðar í Evrópu, leiðir í ljós að fólk hættir að vera ungt, þegar það nær 38 ára aldri og telst verða gamalt þegar það verður 58 ára.

Yfir 40 þúsund manns tóku þátt í könnuninni. Niðurstöðurnar eru afar misjafnar meðal þjóða. Norðmenn telja til dæmis að fólk hætti að vera ungt 34 ára. Kýpverjar virðast taka gjörólíkan pól í hæðina. Að þeirra áliti er fólk ekki lengur ungt þegar það er orðið 52ja ára. Þar telst það vera gamalt við 67 ára aldur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka